Tekið á mútugreiðslum og peningaþvætti 7. desember 2010 08:44 Ögmundur vill að Íslands gerist aðili að samningi Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu mynd/ANTON
Allsherjarnefnd hefur afgreitt frumvarp um samning Sameinuðu þjóðanna um spillingu og leggur til að Alþingi samþykki frumvarpið sem felur í sér að breytingar á hegningarlögum. Ögmundur Jónasson dómsmála- og mannréttindaráðherra mælti fyrir frumvarpinu í byrjun nóvember en í því er meðal annars kveðið á um refsinæmi þess að bjóða innlendum eða erlendum opinberum starfsmanni mútur. Einnig verður það refsivert samkvæmt frumvarpinu að þiggja mútur. Þá er þar tekið á peningaþvætti mútugreiðslna innan einkageirans sem og svokallaðra áhrifakaupa, en með því er átt við þegar áhrifamaður í tilteknu máli skiptir áhrifum sínum út fyrir ávinning frá aðila sem vill hafa áhrif á ákvarðanatökuna. Allsherjarnefnd sendi frumvarpið til umsagnar og fengust jákvæðar umsagnir frá öllum þeim sem svöruðu; Fjármálaeftirlitinu, Mannréttindaskrifstofu Íslands, Ríkisendurskoðun, ríkislögreglustjóra, ríkissaksóknara og Viðskiptaráði Íslands. Samningur Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu er frá 31. október 2003. Markmið samningsins er að stuðla að og styrkja ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir og berjast gegn spillingu með skilvirkari og árangursríkari hætti, styðja alþjóðlega samvinnu og tæknilega aðstoð í tengslum , meðal annars við að endurheimta fjármuni og stuðla að ráðvendni, áreiðanleika og jafnframt að stuðla að góðri opinberri stjórnsýslu og umsýslu opinberra eigna Á Alþingi tengist málið nýsamþykktum lögum sem ætlað er að skapa lagalega umgjörð um siðareglur fyrir ríkisstarfsmenn og ráðherra. Mat allsherjarnefndar er að mikilvægt sé að tryggja alþjóðlega samvinnu í baráttu gegn spillingu og telur að með frumvarpinu og aðild að samningnum sé stigið mikilvægt skref til þess að koma í veg fyrir að þeir sem hafa brotið gegn ákvæðum samningsins erlendis geti komist hjá refsingu, til dæmis með því að dvelja hér á landi.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira