Bankarnir vilja ekki upplýsa um afslátt 12. júlí 2010 18:46
Enginn stóru bankanna þriggja vill gefa upp hvaða afslátt þeir fengu frá gömlu bönkunum á gengistryggðum - og verðtryggðum lánum eftir bankahrunið. Þjóðin á kröfu á að vita hver afslátturinn var, segir Marinó G. Njálsson, stjórnarmaður í Hagsmunasamtökum heimilanna. Hann segir að tölurnar sýni að svigrúm Íslandsbanka til leiðréttinga er langmest. Nú hafa allir stóru bankarnir þrír sent fréttastofu upplýsingar um hvað þeir fengu mikinn afslátt af lánasöfnum gömlu bankanna. Misjafnt er þó - hvaða afsláttartölu þeir velja að gefa upp. Allir fengu þó sömu spurningar, spurt var hver: meðalafslátturinn á safni erlendra fasteignalána annars vegar og hins vegar innlendra fasteignalána var til einstaklinga við færslu úr gömlu bönkunum. Eins og áður hefur komið fram kveðst Landsbankinn hafa fengið 34 prósenta afslátt af öllum lánum til einstaklinga - en inni í því er þá yfirdráttur, skammtímalán, og bæði erlend og innlend íbúðalán. Íslandsbanki gefur aðeins upp heildarafsláttinn sem hann fékk á öllum lánum bankans til bæði fólks og fyrirtækja. Sá afsláttur var 47% samkvæmt bankanum. Bankinn tekur þó fram að íbúðalánasafnið hafi fengist með töluvert minni afslætti. Hversu miklu minni - neitar bankinn að gefa upp. Og nú hafa líka borist svör frá Arionbanka sem segir að meðalsafsláttur af bæði erlendum og innlendum íbúðalánum hafi verið 25%.
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira