Tæknileg mistök hluti af skýringunni 15. janúar 2010 05:00 Karen Pálsdóttir átti að öllum líkindum erfitt með að greina rétta tóntegund Eurovision-lagsins In the Future vegna þess hversu lágt innspilið, eða „playbackið“, var. Reyndir söngvarar eru með tóntegundina í kollinum en fyrir unga og óreynda söngvara er erfitt að fást við slík tæknileg vandamál. <B>Þórhallur Gunnarsson</B>, dagskrárstjóri RÚV, segir hækkað aldurstakmark enga lausn.
Innspil lagsins, svokallað „playback“ Eurovision-lagsins In the Future var of lágt stillt þegar Karen Pálsdóttir, sextán ára söngkona, flutti það í Söngvakeppni Sjónvarpsins á laugardagskvöld. Umrætt atriði hefur verið mörgum hugleikið í netheimum og var þeirri umræðu gerð sérstök skil í Kastljósi Ríkissjóvnarpsins á miðvikudagskvöld en flutningur á laginu heppnaðist ekki alveg sem skyldi. Þegar umrætt „playback“ er of lágt getur það gerst að söngvarar eiga erfiðara um vik með að greina rétta tóntegund. Reyndir söngvarar eru yfirleitt með hana í kollinum og vilja hafa „playback“ fremur lægra en hærra. Erfiðara getur hins vegar reynst fyrir unga og óreynda listamenn ef þeir eru ekki alveg öruggir á því hvernig það eigi að vera.Söngkonan Margrét Eir Hjartardóttir, sem hefur þjálfað Karen að undanförnu, staðfesti við Fréttablaðið að umrætt „playback“ hefði verið of lágt og höfundar lagsins, þau Bryndís Sunna Valdimarsdóttir og Daði Georgsson, sögðu bæði í samtali við Fréttablaðið að þau hefðu strax gert sér grein fyrir því að ekki væri allt með felldu. Of seint hefði þó verið að grípa inn í. Bryndís bendir á að bakraddasöngkonurnar hefðu byrjað í vitlausum tón og dansararnir hefðu átt erfitt með að finna rétta taktinn. Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri RÚV, segir tæknimenn Sjónvarpsins vera að fara yfir útsendinguna og að eflaust megi eitthvað við hana lagfæra. Upptaka með atriðinu hefur nú verið fjarlægð af myndbandsvefnum YouTube en það voru lagahöfundarnir sem fóru fram á það við forsvarsmenn vefsíðunnar. „Við gerðum þetta að ósk Karenar og fjölskyldu hennar og vildum minnka það að fólk væri að klippa búta úr laginu og nota í annarlegum tilgangi,“ segir Daði. Fréttablaðið hafði í gær samband við föður Karenar, Pál Róbertsson, en hann upplýsti að þau myndu ekkert tjá sig um málið að svo stöddu. Upp hefur komið sú umræða að hækka aldurstakmarkið vegna umrædds atviks en Þórhallur segir þetta hafa getað komið fyrir hvernig sem er, hvort sem söngvarinn væri átján eða sextán ára. „Aldur er ekkert aðalmálið í þessu heldur sú staðreynd að þetta getur komið fyrir hvern sem er.“- freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Fleiri fréttir Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Sjá meira