Fresco leitar að bassaleikara 10. júní 2010 13:00 Hljómsveitin Agent Fresco þegar Borgþór Jónsson spilaði á bassann.
Bassaleikarinn Borgþór Jónsson, einn af stofnendum Agent Fresco, er hættur í hljómsveitinni. Óvíst er hver tekur við af honum en sveitin er með nokkra bassaleikara í sigtinu. „Í marsmánuði tókum við sameiginlega ákvörðun um að Boggi myndi ekki spila á bassa lengur með okkur. En við erum ennþá mjög góðir vinir," segir söngvarinn Arnór Dan Arnarson. „Þetta var ekkert drama. Við tókum bara fund og ákváðum að áður en við myndum gefa út disk væri fáránlegt að túra og spila mikið á meðan hann væri ekki 100% til í þetta." Að sögn Arnórs er hljómsveitin orðin öðruvísi en sú sem vann Músíktilraunir fyrir tveimur árum. Sveitin hefur sett sér stór markmið og til að fylgja þeim eftir þurfi allir að vera á sömu bylgjulengd. Fyrstu tónleikar Agent Fresco í fjóra mánuði verða á vorhátíð knattspyrnufélagsins KF Mjaðmar á föstudag. Þá spilar á bassann Vignir úr Ultra Mega Technobandinu Stefáni, sem er góður vinur Fresco-strákanna úr FÍH. Annar bassaleikari sem þeir hafa augastað á er Helgi Eyjólfsson úr Fjallabræðrum. „Þetta er erfið ákvörðun. Þetta er eins og samband. Við getum ekki valið bassaleikara bara út af því að hann er góður. Við þurfum að höndla að vera saman á tónleikaferðum og það þarf að vera góð tenging á milli strákanna," segir Arnór Dan. Agent Fresco hefur upptökur á nýrri plötu í ágúst og er hún væntanleg í búðir í október eða nóvember. „Þetta verður svaka konseptplata, full af pælingum," segir hann spenntur.
Mest lesið Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Lífið Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Lífið Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Lífið Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Lífið Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Lífið „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ Lífið Risastór menningarhátíð á Flateyri Menning Tímalausar og fallegar brúðargjafir Lífið Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Lífið Skákborðsréttir nýjasta matartískan Lífið Fleiri fréttir Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Krakkatían: Tölur, mýs og tónlist Julian McMahon látinn Var orðið að spurningu um líf og dauða Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar Umboðsmaður Jenner lést af slysförum „Þvílíkur fílingur bara“ „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Rósa og Hersir orðin foreldrar Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Staðfesta sambandsslitin Sjá meira