Japanar vilja hitaveitu að íslenskri fyrirmynd 23. nóvember 2010 06:00 össur skarphéðinsson
Japönsk stjórnvöld hafa óskað eftir auknu samstarfi við Íslendinga um nýtingu jarðhita. Japanar hafa ákveðið að verja gríðarlegum fjárhæðum til að byggja upp endurnýjanlega orkugjafa í þróunarlöndunum, að sögn Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra. Össur var í Tókýó í síðustu viku þar sem hann hélt fyrirlestur á stórri jarðhitaráðstefnu sem Ísland og Japan héldu sameiginlega í Háskóla Sameinuðu þjóðanna. „Japanar eru framarlega í notkun háhita til að framleiða raforku en það kom mér á óvart hversu miklir möguleikar eru á ákveðnum svæðum í Japan til að koma upp hitaveitum að íslenskri fyrirmynd,“ segir Össur. Hann segir nokkur af stóru verkfræði- og orkufyrirtækjum Japana þegar hafa lýst vilja skriflega til að fá íslensk verkfræðifyrirtæki til liðs við sig í því skyni að hitaveituvæða nokkrar borgir í Japan. Tilgangur Japansferðarinnar var einnig að ræða við opinbera sjóði og ráðuneyti sem veita ábyrgðir til að liðka fyrir fjárfestingum. Er þá átt við kaup Orkuveitu Reykjavíkur (OR) á túrbínum sem notaðar hafa verið við jarðhitavinnslu. Össur segir fjármögnun hafa verið erfiða eftir bankahrunið. „Það er óhætt að segja að undirtektir voru góðar, bæði hjá sjóðum og ráðherrum,“ segir Össur. Með í för voru fulltrúar frá Orkuveitu Reykjavíkur (OR), þar á meðal Helgi Þór Ingason forstjóri. „Þetta gekk ágætlega,“ segir Helgi. „Þetta er flókið mál að komast í gegn um og við vorum spurðir margra spurninga og við gátum öllum svarað. Ég er mjög þakklátur ráðuneytinu fyrir góða frammistöðu og gott skipulag.“ Össur tekur undir orð Helga og segir menn almennt vera bjartsýna á framhaldið. Besta fjárfesting japönsku sjóðanna væri að tryggja liðveislu íslenskra sérfræðifyrirækja, sem væru fremst á því sviði. „Ég átti viðræður bæði við utanríkis- og iðnaðarráðherra Japan og í lok ráðstefnudagsins lýstu stjórnvöld yfir að þau myndu óska eftir því við Íslendinga að þeir tækju þátt í sérstökum vinnuhópi um hvernig best væri hægt að haga samstarfi Japana og Íslendinga varðandi nýtingu jarðhita, bæði í Japan og í þróunarlöndunum,“ segir utanríkisráðherra. sunna@frettabladid.is
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Sjá meira