Íslenskir jeppar á methraða á pólinn 11. desember 2010 04:00 Eyjólfur Már Teitsson
Hlynur Sigurðsson, starfsmaður frá íslenska fyrirtækinu Arctic Trucks, er á heimleið eftir jeppaferð á suðurpólinn. Talið er að hraðamet hafi fallið í ferðinni þar sem 2.300 kílómetrar voru lagðir að baki á fjórum og hálfum sólarhring. Hlynur, sem var bílstjóri og bifvélavirki í ferðinni, komst á pólinn aðfaranótt fimmtudags en var utan símasambands þegar fréttin var unnin. Hallveig Andrésdóttir, hjá Arctic Trucks, segir hins vegar í samtali við Fréttablaðið að ferðin hafi gengið að óskum. Sérútbúnir Hilux-jepparnir hafi reynst vel. „Þessir bílar voru smíðaðir hér á Íslandi í sumar og prófaðir hér, en eru í eigu manna frá Kasakstan sem eru að undirbúa annan og stærri leiðangur á næsta ári.“ Þetta er annar leiðangurinn á stuttum tíma þar sem bílar Arctic Trucks ferja menn á pólinn, en undir lok síðasta mánaðar fór Eyjólfur Már Teitsson með hóp indverskra vísindamanna sömu leið. Hallveig segir að þriðji leiðangurinn leggi af stað á næstu dögum. Þar verður meðal annars í fyrsta sinn prófaður sex hjóla Hilux, en bílar fyrirtækisins hafa getið sér gott orð og eru nú tólf talsins á Suðurskautslandinu. „Við höfum verið þarna í þrjú ár og erum alltaf að sanna okkur betur á þessum slóðum,“ segir hún. „Þau tæki sem hafa hingað til verið notuð þar eru miklu stærri og þunglamalegri og eyða margfalt meiri olíu en okkar bílar þannig að það eru ekki bara aukin þægindi, heldur eru þeir líka miklu umhverfisvænni.“ Eyjólfur stóð á pólnum með fyrsta leiðangrinum hinn 23. nóvember og segir samtali við Fréttablaðið að upplifunin hafi verið einstök og um leið skemmtileg. „Þetta var alveg mögnuð reynsla og mjög mikill kuldi. Svona hef ég aldrei upplifað áður. Frostið mældist mest um 56 stig, fyrir utan vindkælingu.“ Aðspurður sagði hann að vel hafi farið um ferðalangana. „Það er munur að sitja inn i í hlýjum bíl og hann fer vel með mann. Maður keyrir bara og hlustar á tónlist nema eitthvað komi upp á.“ Eyjólfur segist ekki enn hafa fengið tækifæri til að bæta norðurpólnum í safnið. „Þeir eru ekki margir sem hafa ekið á báða pólana, en ég væri alveg til í að tilheyra þeim hópi.“ thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Sjá meira