GPS tæki efst á óskalista þjófa Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. janúar 2010 11:36 GPS tæki.
Undanfarna mánuði hefur verið töluvert um innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu og því vill lögreglan ítreka enn og aftur að verðmæti séu ekki skilin eftir í bílum. Tölvur, myndavélar, hljómflutningstæki og radarvarar eru meðal þess sem hefur löngum freistað þjófa en nú virðist sem svokölluð GPS-tæki séu efst á þessum lista. Fjölda GPS-tækja hefur verið stolið úr bílum á höfuðborgarsvæðinu upp á síðkastið og því vekur lögreglan á þessu sérstaka athygli. Í síðustu viku var t.d. tilkynnt um innbrot í 20 bíla í Breiðholti, Kópavogi og Mosfellsbæ en úr þeim flestum, ef ekki öllum, var stolið GPS-tækjum. Vegna þessa biður lögreglan eigendur eða umráðamenn ökutækja að skilja ekki verðmæti eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn. Þegar tilkynningar til lögreglu um innbrot í bíla eru skoðaðar kemur í ljós að þjófar láta til skarar skríða jafnt að degi sem nóttu. Og brotavettvangur getur ýmist verið á bifreiðastæði, við verslunarmiðstöð, kvikmyndahús, sundlaug eða útivistarsvæði, svo nokkur dæmi séu tekin. Fólk getur sömuleiðis orðið fyrir á barðinu á þjófum hvort heldur bílnum er lagt utan við heimilið eða vinnustaðinn. Þetta er nauðsynlegt að hafa í huga en besta ráðið er auðvitað að skilja ekki verðmæti eftir í bílum.
Mest lesið Árásir stóðu yfir í rúma tólf tíma Erlent Með bílinn fullan af fíkniefnum Innlent Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Innlent Lögreglan með málið til rannsóknar Innlent Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Innlent Segist hafa hafnað boði til einkaeyju Epsteins Erlent Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Innlent Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla Innlent Vill fá Trump til að gefa Taívan upp á bátinn Erlent „Það verður boðið fram í nafni VG“ Innlent Fleiri fréttir Skora á Snorra að gefa kost á sér Bíll valt eftir flótta undan lögreglu og þrír slösuðust Reiknað með afskiptum af öllum samkomum Vítisengla Lögreglan með málið til rannsóknar Áframhaldandi aðgerðir gegn Vítisenglum Geirfinnsmálið, orkuöflun, gjaldeyrishöftin og íslenskan á Sprengisandi Drógu aflvana bát í land í Neskaupstað Með bílinn fullan af fíkniefnum „Það verður boðið fram í nafni VG“ Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Þór sækist eftir endurkjöri Furðar sig á þjóðaröryggisráði og rándýr barnaafmæli Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Þyrlan kölluð út vegna vélsleðaslyss á Langjökli „Gervigreind er líka fyrir heimilið“ Hringvegurinn opnaður á ný klukkan 17 Snæfellsnes orðið að vistvangi UNESCO „Stór húsnæðis- og efnahagspakki“ á leiðinni Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Þungir dómar ekki óvæntir og fyrsti vistvangur landsins Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Byrjað að moka í Hringveginn en talsverð vinna framundan Tíu gistu í fangageymslu og þar af tveir „peruölvaðir“ „Við þurfum ekki öll að fara á sjúkrahús“ Vilja RÚV af auglýsingamarkaði Sjá meira