Undarleg skilaboð úr ráðuneytinu um kjúklingakjöt 8. desember 2010 15:37 Að mati Neytendasamtakanna koma misvísandi skilaboð úr sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu um innflutning á kjúklingakjöti „
Þau eru undarleg skilaboðin sem berast frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu í fjölmiðlum þessa dagana," segir í pistli á vef Neytendasamtakanna sem ber einfaldlega yfirskriftina: „Undarleg skilaboð." „Fyrir nokkrum dögum hélt sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra því fram að minni kröfur væru gerðar til innflutts kjúklingakjöts en innlendrar framleiðslu hvað varðar salmonellusýkta kjúklinga. Það er hins vegar svo að kjúklingakjöti sem flutt er inn frá öðrum löndum verður að fylgja heilbrigðisvottorð um að það séu án salmonellu. Það verður að teljast meira en lítið undarlegt þegar sá ráðherra sem fer með matvælamál þekkir ekki eigin reglur betur," segir í pistlinum sem birtist á vefnum í dag. „Í gær kom svo yfirlýsing frá upplýsingafulltrúa ráðuneytisins og þar sem hann kvartaði yfir því að hér giltu of strangar heilbrigðiskröfur varðandi kjúklingaframleiðslu þegar kæmi að salmonellusýktum afurðum. Þessar kröfur gerðu það að verkum að birgðir af innlendu kjúklingakjöti væru of litlar vegna tíðra salmonellusýkinga í kjúklingabúum hér á landi. Lesa mátti milli línanna að einfaldast væri að slaka á kröfum og leyfa um leið að salmonellusýktar vörur séu í verslunum. Ljóst er að neytendur geta engan vegin tekið undir þetta og raunar eiga kjúklingaframleiðendur einnig að mótmæla harðlega. Það er ekki til hagsbóta fyrir þá ef salmonellusýkt vara er í verslunum. Salan mun einfaldlega dragast saman, það hefur reynslan sýnt okkur," segir á vefnum.Vefur Neytendasamtakanna.
Mest lesið Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Erlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Innlent Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Erlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Fleiri fréttir Kópavogsbúar karpa um Reykjavíkur-Grýluna Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Sjá meira