Launabilið eykst - enn lægri laun í almannnaþjónustu 13. september 2010 10:56 Starfsmenn Landspítala eru að stórum hluta í SFR Mynd: Vilhelm Gunnarsson
Launabilið milli starfsmanna í almannaþjónustu og starfsmanna á almennum vinnumarkaði hefur aukist milli ára. Starfsmenn á almennum vinnumarkaði hafa 18 prósent hærri laun en starfsmenn í almannaþjónustu. Í fyrra var munurinn 15 prósent en 20 prósent árið þar á undan. Þetta er niðurstaða nýrrar launakönnunar SFR stéttarfélags í almannaþjónustu. Könnunin er unnin í samstarfi við VR af Capacent Gallup. Þegar tekið hefur verið tillit til kyns, aldurs, starfsstéttar, starfsaldurs, vinnutíma, vaktaálags og menntunar, er munurinn á heildarlaunum félagsmanna SFR og VR 18 prósent. Launaskrið á almennum markaði Í tilkynningu frá SFR segir að á þessum tölum má sjá að enn er þrengt mun meira að starfsmönnum í almannaþjónustunni en þeim sem starfa á almennum vinnumarkaði. Launaskrið hefur orðið hjá þeim síðarnefndu en ekki hjá starfsmönnum almannaþjónustunnar. Almenni vinnumarkaðurinn virðist miðað við þessar tölur vera að rétta hraðar úr kútnum eftir efnahagshrunið en sá opinberi, en starfsmenn í almannaþjónustunni sitja eftir í launaþróuninni. Launamunur kynjanna minnkar Launakönnunin leiddi ennfremur í ljós að kynbundinn launamunur meðal félagsmanna SFR minnkar á milli ára og er nú 9,9%, en var 11,8% 2009. Við útreikninga liggja til grundvallar laun fólks í fullu starfi. Tekið er tillit til áhrifa fjölmargra þátta í útreikningunum þannig að sá munur sem fram kemur í launum karla og kvenna skýrist ekki af vinnutíma, starfi, atvinnugrein, aldri, starfsaldri eða menntun. Aukagreiðslur til karla hækka Þegar heildarlaunaþróun karla og kvenna er hins vegar skoðuð má sjá að heildarlaun kvenna hækkuðu minna en heildarlaun karla eða um 0,5% á meðan laun karla hækkuðu um 3,8% á tímabilinu. Þetta er viðsnúningur frá því fyrir ári, þegar heildarlaun karla stóðu í stað milli ára, en heildarlaun kvenna hækkuðu um 7,4%. Helsta skýringin á meiri hækkun heildarlauna karla en kvenna er sú að aukagreiðslur til karla hækkuðu meira en aukagreiðslur til kvenna á milli ára. Einkum hækka greiðslur vegna yfirvinnu hjá körlum, en laun kvenna fyrir yfirvinnu lækkuðu milli ára. Þessi þróun veldur því að heildarlaun karla hækka en heildarlaun kvenna standa því sem næst í stað á milli ára. Þrátt fyrir þetta minnkar launamunurinn þegar tekið hefur verið tillit til allra þátta, segir í tilkynningunni.
Mest lesið Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Ljóst hvar sólin verður um Versló og hvar ekki Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Innlent Fleiri fréttir Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um Versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Sjá meira