Innlent

Hætt við gullleit á Austurlandi

Valur Grettisson skrifar
Gull. Myndin er úr safni.
Gull. Myndin er úr safni.

Ástralska jarðefnarannsóknarfyrirtækið, Platina Resources Ltd., hefur dregið umsókn sína um leyfi til leitar og rannsókna á gulli og öðrum málmum á Austurlandi til baka. Þetta kemur fram á heimasíðu Orkustofnunnar.

Þar segir að ástæðan sé jákvæð niðurstaða úr verkefnum fyrirtækisins í Ástralíu. Mun fyrirtækið því leggja meginþunga starfsemi þess í þau verkefni.

Fyrirtækið sótti um leyfið hér á landi í apríl á þessu ári. Hefði leyfið verið veitt hefði það verið til tveggja ára.

Eftir sem áður álítur Platina Resources Ltd. Ísland vera áhugaverðan kost hvað varðar hugsanleg verkefni síðar meir samkvæmt tilkynningu á heimsíðu stofnunarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×