Innlent

Þyrla LHG sótti slasaðan gangnamann

Gangnamaðurinn, sem féll af hestbaki og slasaðist í svonefndum Fjörðum, austan við Eyjafjörð um níu leitið í gærkvöldi, komst undir læknishendur um miðnætti, þegar þyrla Landhelgisgæslunnar lenti með hann við sjúkrahúsið á Akureyri.

Þá voru tugir björgunarsveitarmanna lagðir af stað til aðstoðar, meðal annars á bátum. En þegar draga fór af manninum á slysstað og hann missti meðvitund af og til, var kallað eftir þyrlunni til að koma honum sem allra fyrst á sjúkrahús. Leiðangurinn gekk vel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×