Kynfæragötun aldrei vinsælli 9. september 2010 14:00 Hjónin Svanur Guðrúnarson tattúmeistari og Seselía Guðmundsdóttir gatari á stofu sinni Tattoo og skarti á Hverfisgötu, þangað sem margir sækja sér innblástur og láta drauma sína rætast. Fréttablaðið/GVA
Kynfæragötun tröllríður nú tískustraumum í líkamsgötun, en ávinningurinn af henni ku felast í meiri ánægju kvenna í ástalífinu. „Stelpur elska naflagöt, og gat í tungu er enn hæstmóðins, en langmest aukning er í kynfæragötun kvenna. Þá er settur lóðréttur pinni í gat ofan við snípinn sem eykur kynferðislegan unað," segir Seselía Guðmundsdóttir, gatari hjá Tattoo og skarti á Hverfisgötu, spurð um helstu tískustrauma í líkamsgötun. „Í Svíþjóð og Danmörku er varla neitt að gera lengur í götun en hér heldur eftirspurn áfram sem aldrei fyrr enda Íslendingar sjálfstæðir og gera það sem þeir vilja," segir Seselía sem telur klámvæðingu síðustu missera líklegustu skýringuna á stóraukinni kynfæragötun, en aukning er 800 prósent milli ára. „Kynfæragötun hefur sótt mjög í sig veðrið á aðeins einu ári, en í fyrra gataði ég tvær konur í mánuði miðað við sextán konur í mánuði nú. Flestar eru á aldrinum 18 til 40 ára og með öllu ófeimnar, en ég spyr þær aldrei um ástæður því enn viðurkenna fæstar konur að horfa á klám. Hins vegar þykir mér líklegt að klámstjörnur séu margar gataðar og þaðan sé tískan að mestu upprunnin," segir Seselía. „Götunin sjálf tekur ekki nema tíu mínútur og engin hætta á ferðum ef farið er eftir leiðbeiningum um umhirðu eftir á, en það er eins með götun og tattú að sniðgangi fólk allar reglur er voðinn vís, og sá sem það gerir einu sinni gerir það ekki aftur," segir Seselía. Bæði Fjölnir Bragason tattúmeistari og Berglind Rós Ragnarsdóttir, gatari á Íslenzku húðflúrstofunni við Hverfisgötu, staðfesta orð Seselíu. „Kynfæragötun er mun algengari en fólk heldur og eftirspurnin mikil, en aukning er mest hjá yngri konum," segir Berglind. „Oftast er settur boginn pinni eða hringur í gatið, og alltaf í því augnamiði að auka unað. Flestar eru ófeimnar, en nefna þó að þær hefðu frekar hikað með kynfæragötun ef karlmaður sæi um verkið. Að mínu áliti hefur klámvæðingin gert konur meðvitaðri um þennan möguleika í kynlífinu, en vitaskuld spyrst þetta líka út meðal kvenna og smitar út frá sér," segir Berglind. Önnur tíska sem nú nær aukinni útbreiðslu í líkamsgötun eru svokölluð "tunnels" eða göng sem eru stór göt í eyrnasnepla þar sem komið er fyrir hvers kyns hringjum og hnöppum. „"Tunnels" er að færast niður í aldri og foreldrar eru ekkert voðalega sáttir, en þetta er aðal eyrnatískan í dag og að verða jafn vinsælt hjá báðum kynjum. Ferlið tekur um tvo mánuði og er þá komið á tveggja vikna fresti til að stækka gatið. Tískan kemur upprunalega frá Lundúnum og byrjaði sem pönk, en hér á Íslandi fylgir hún tattú-menningu og rokki, og gefur í skyn svolitla uppreisn þegar reynt er á þolrifin hjá afa og ömmu," segir Seselía og brosir í kampinn. „Ég geri þó aldrei "tunnels" nema hringja fyrst í mömmu viðkomandi til að fá leyfi því eyrnasnepill verður aldrei samur í útliti ef farið er út í víðari göng en 8 millimetra, en dæmi er um að fólk hafi fengið sér 30 millimetra "tunnels"." - þlg
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira