Innlent

Stúlkan fannst heil á húfi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Stúlka sem björgunarsveitir leituðu að í dag fannst heil á húfi laust fyrir klukkan sex. Hún var þá stödd í Hinu húsinu en hafði læst sig inni á baðherbergi og komst ekki út. Talið er að hún hafi verið þar í dágóða stund. Starfsmaður í Hinu húsinu sá bakpoka stúlkunnar á staðnum og kannaði í kjöfarið málið og fann stúlkuna. Um 60 björgunarsveitamenn voru komnir til leitar þegar að stúlkan fannst.




Tengdar fréttir

Leita að stúlku í Grafarvogi og Breiðholti

Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu hafa verið kallaðar út til leitar að 17 ára stúlku sem saknað er í Grafarvogi í Reykjavík. Stúlkan var á leið frá heimili sínu til skóla í morgun þegar að hún týndist. Hún er með Downs heilkenni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×