Innlent

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar næstu dag

MYND/Arnþór

Herjólfur mun sigla á milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar í dag og næstu daga, að minnsta kosti.

Landeyjahöfn virðist enn vera að grynnka, samkvæmt mælingum þar í gær, og fyrir séð er að dæling úr henni hefst ekki fyrr en eftir einhverja daga. Þá er dæling háð því að ölduhæð sé ekki nema rétt rúmur metri.

Fulltrúar Vegagerðarinnar og Ölfus áttu í gær fund um framtíð Þorlákshafnar sem varahafnar fyrir Herjólf, en vegagerðin mun ekki hafa haft áhuga á slíkum viðræðum fyrr en nú, að í harðbakkan sló.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×