Innlent

BHM: Tekið undir orð nýs ráðherra

Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM.
Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM.

Stjórn BHM, bandalags háskólamanna, tekur heils hugar undir þau orð nýskipaðs heilbrigðis-, félags- og tryggingamálaráðherra, Guðbjarts Hannessonar sem höfð eru eftir honum í viðtali við Fréttablaðið þann 4. september 2010, að móta þurfi heildstæða stefnu og sýn í opinberri þjónustu og að ekki verði skorið niður með flötum hætti í þeim sparnaðaraðgerðum sem framundan eru.

Í ályktun stjórnarinnar er bent á að BHM og einstök aðildarfélög þess hafa ítrekað óskað eftir aðkomu að umræðu um stefnu í opinberum rekstri og hvatt til þess að samráðs sé leitað við fagfélög í hverjum málaflokki. „Jafnframt vill stjórn BHM árétta mikilvægi þess að samráð sé haft við stéttarfélög starfsmanna þegar unnið er að sameiningu stofnana."

Þá segir að í tilefni ráðherraskiptanna í heilbrigðismálum vilji stjórnin sérstaklega ítreka ósk sem komið var á framfæri við fyrri ráðherra, þess efnis að fulltrúar þeirra fagstétta innan BHM sem að málaflokknum starfa séu reiðubúnir til samstarfs og samráðs um hvers kyns stefnumótun í heilbrigðismálum. „BHM er sérlega umhugað um að við skipun í nefndir á vegum ráðuneyta sé tillit tekið til allra stétta sem heyra undir þau."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×