Innlent

Lög um hópmálssókn samþykkt á Alþingi

Alþingi samþykkti í gær lög sem gerir mögulegt að hefja hópmálsókn fyrir dómi. Ef þrír aðilar eða fleiri eiga kröfur á hendur sama aðila, geta þeir samkvæmt lögunum stofnað málsóknarfélag, sem fer með sameiginlegar kröfur þeirra.

Skrá skal slíkt félag og gera grein fyrir því fyrir dómi hverjir standa að því, en félaginu í heild yrðu síðan dæmdar bætur ef þeim væri að skipta. Fjölga má í málsóknarfélaginu eftir að mál er hafið, en áður en aðalmeðferð þess er hafin fyrir dómi.

Ef fjölgar í félaginu má auka dómkröfur í þágu nýs félagsmanns.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×