Innlent

Reykjavík gæti orðið Græna borgin

Fulltrúar borgarinnar sátu fyrir svörum í Brussel. Mynd af vef Reykjavíkurborgar.
Fulltrúar borgarinnar sátu fyrir svörum í Brussel. Mynd af vef Reykjavíkurborgar.

Jón Gnarr borgarstjóri segir að Reykjavík eigi góða möguleika á að verða Græna borgin í Evrópu en hann sat fyrir svörum sérstakrar dómnefndar í Brussel í gær. Tvær evrópskar borgir verða valdar í október til að bera titilinn European Green Capital eða Græna borgin í Evrópu árin 2012 og 2013.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að sautján borgir í tólf Evrópulöndum hafi sótt um tilnefninguna og skilað inn viðamiklum umsóknum. „Sex þeirra komust í undanúrslit og fengu tækifæri til að flytja mál sitt í Brussel. Það voru Núrnberg frá Þýskalandi, Nantes frá Frakklandi, Málmey frá Svíþjóð, Barcelóna og Vitoria-Gasteiz frá Spáni ásamt Reykjavíkurborg."

Þau Jón Gnarr, Karl Sigurðsson formaður umhverfis- og samgönguráðs og Heiða Kristín Helgadóttir aðstoðarmaður borgarstjóra sátu fyrir svörum ásamt sérfræðingum Reykjavíkurborgar á sviði umhverfis- og skipulagsmála. Ellý Katrín Guðmundsdóttir sviðsstýra flutti kynningu og sýndi nýtt myndband um Reykjavík sem græna borg.

Heiður að komast í forvalið

„Ég er ánægður með hversu faglega starfsmenn borgarinnar hafa staðið að umsókninni enda er heiður að komast í forval þessarar mikilvægu tilnefningar," sagði Jón Gnarr. „Við höfum gífurlega mikinn áhuga á að vinna að umhverfismálunum í borginni," sagði borgarstjóri og bætti við að Reykjavík gæti orðið fyrirmynd annarra borga, til að mynda í loftgæða- og loftslagsmálum.

Í umsókninni er dregið saman hvað Reykjavíkurborg hefur gert á liðnum árum í umhverfismálum og er sú vinna metin í samhengi við aðrar borgir í Evrópu að því er fram kemur í tilkynningunni. „Fjölmargir sérfræðingar hjá Reykjavíkurborg komu að umsókninni og öllu ferlinu sem þar liggur að baki. Reykjavíkurborg kom m.a. einna best út í loftgæða- og kynningarmálum sem er góð viðurkenning á þeim fjölmörgu verkefnum sem borgin hefur ráðist í hvað þau mál varðar. Einnig hefur umsóknarferlið dregið fram að helstu verkefnin framundan hjá borginni liggja í samgöngu- og úrgangsmálum."

Hér má sjá kynningarmyndbandið sem sýnt var í Brussel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×