Vill ekkert segja fyrr en að lestri loknum 9. september 2010 04:00 Jón Bjarnason hefur ekki kynnt sér skýrsluna í heild né vinnugögn nefndarinnar. Tjáir sig því ekki að svo stöddu.fréttablaðið/anton
Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra vill ekkert tjá sig um einstök efnisatriði nýútkominnar skýrslu starfshóps um endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins. Í viðtali Fréttablaðsins við ráðherra kom ekki fram hvenær hann telur ástæðu til að tjá sig þar sem hann hefur ekki kynnt sér skýrsluna til hlítar. Jón skipaði starfshópinn í júlí 2009 til að endurskoða fiskveiðistjórnunarkerfið, með vísan til stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnar Samfylkingar og VG um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða. Verkefnið var að skilgreina helstu álitaefni sem fyrir hendi eru og setja fram valkosti sem líklegir væru til að sem víðtækust sátt náist um fiskveiðistjórnunina meðal þjóðarinnar. Jón segist ánægður með að hópurinn hafi skilað af sér. Hins vegar hafi hann ekki náð að fara í gegnum alla þætti skýrslunnar. „Hún verður í framhaldinu tekin til skoðunar og framhaldsvinnu í ráðuneytinu,“ segir ráðherra. Starfshópurinn mælir eindregið með að farin verði svokölluð samningaleið. Er það túlkun fulltrúa innan nefndarinnar og hagsmunaaðila að það útiloki fyrningarleiðina en í stjórnarsáttmála Samfylkingarinnar og VG frá í maí 2009 stendur: „Lög um stjórn fiskveiða verði endurskoðuð í heild með það að markmiði að skapa sátt meðal þjóðarinnar um eignarhald og nýtingu auðlinda sjávar og leggja grunn að innköllun og endurráðstöfun aflaheimilda á tuttugu ára tímabili í samræmi við stefnu beggja flokka.“ Fréttablaðinu lék forvitni á að vita hvort Jón túlki niðurstöðu starfshópsins með sama hætti. Eins hvort hann sjái samningaleiðina sem kost. Þessum spurningum svaraði ráðherra með eftirfarandi hætti: „Ég mun láta fara yfir alla kosti og segi ekki meira að svo stöddu.“ svavar@frettabladid.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira