Formannsslagur hjá ungum sjálfstæðismönnum 9. september 2010 09:22 Aðalfundur Heimdallar verður haldinn í Valhöll
Jónas Margeir Ingólfsson, 22 ára laganemi, hefur tilkynnt framboð sitt til formanns Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna. Áður hefur Hlynur Jónsson, laganemi og fyrrverandi formaður Ungra frjálshyggjumanna, tilkynnt um framboð sitt. Sitjandi formaður, Árni Helgason, gefur ekki kost á sér til endurkjörs. Aðalfundur Heimdallar fer fram miðvikudaginn 15. september og mun þá ný stjórn taka við félaginu. Jónas starfaði í sumar sem blaðamaður á Morgunblaðinu. Hann var forseti nemendafélags Menntaskólans við Hamrahlíð veturinn 2006-7 og jafnframt talsmaður hagmunaráðs íslenskra framhaldsskólanema. Jónas Margeir hefur verið virkur í starfi ungra sjálfstæðismanna og sat m.a. í varastjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna árin 2005-2007. Hann býður sig fram ásamt ellefu öðrum sem saman stefna á að mynda stjórn Heimdallar. Í tilkynningu sem hópurinn sendi frá sér segir: „Við gefum kost á okkur til þess að leiða starf félagsins á næsta ári og viljum leggja á það höfuðáherslu í okkar starfi að virkja ungt fólk til þátttöku í stjórnmálum. Mikill pólitískur áhugi er á meðal ungs fólks í dag og miklu skiptir að Heimdallur sé opinn og aðgengilegur vettvangur fyrir þennan stóra hóp til að kynnast og móta stefnu og starf Sjálfstæðisflokksins. Við teljum að Heimdallur eigi að vera gagnrýninn, bæði inn á við gagnvart kjörnum fulltrúum flokksins sem og út á við gagnvart þeim málum sem efst eru á baugi hverju sinni, að félagið eigi að berjast fyrir hugsjónum um frelsi, frjálslyndi og svigrúm einstaklingsins til að blómstra á eigin forsendum ásamt því að tala máli ungs fólks þegar á þarf að halda" Meðframbjóðendur Jónasar eru:Albert Guðmundsson, nemandi í MR. Albert er í ræðuliði Menntaskólans í Reykjavík og gegnir embætti Le Pré Róðrafélagsins. Atli Hjaltested, útskrifaður úr MS. Atli var virkur í félagsstörfum í Menntaskólanum við Sund, var m.a. í sigurliði skólans í Morfís nú í vor og handhafi titilsins ræðumaður Íslands. Árni Grétar Finnsson, laganemi við HÍ. Árni Grétar útskrifaðist úr Verslunarskólanum í vor og var virkur í félagsstörfum, þ. á m. í ræðuliði skólans. Erla María J. Tölgyes, nemandi í sálfræði við Háskólann í Reykjavík. Erla útskrifaðist úr Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í vor og var formaður nemendafélagsins þar síðasta vetur. Hjalti Geir Erlendsson, laganemi við HÍ. Hjalti var í stjórn Orators, félags laganema, síðasta vetur og starfaði í sumar sem blaðamaður á Morgunblaðinu. Hjalti Geir er í landsliðinu í fimleikum. Hlynur Einarsson, stjórnmálafræðingur. Hlynur var varaformaður Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta í Háskóla Íslands, árið 2008-9. Þá var Hlynur formaður nemendafélags fjölbrautaskólans í Breiðholti. Jakob Gunnarsson, nemandi í Menntaskólanum í Reykjavík. Jakob var í ritstjórn Gjallarhorns, tímarits Heimdallar, sem var endurvakið með útgáfu í vor. Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Nethönnun. Jóhanna var í stjórn Heimdallar á starfsárinu sem er nú að líða og gegndi m.a. starfi kosningastjóra ungra sjálfstæðismanna í borgarstjórnarkosningunum í vor. Jóna Vestfjörð Hannesdóttir, nemandi á lokaári í Verslunarskóla Íslands en Jóna er í ritstjórn Viljans, tímarit nemendafélags VÍ. Yngvi Eysteinsson, útvarpsmaður á FM957 og einn af stofnendum útvarpsstöðvarinnar Flass FM. Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð, laganemi á 4. ári við Háskólann í Reykjavík. Þórdís var í stjórn SUS árin 2007-9 og var formaður ungra sjálfstæðismanna á Akranesi.
Mest lesið Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Erlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Innlent Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Innlent Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Fleiri fréttir Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Sjá meira