Innlent

Gagnaver: Ríkisstjórnin gagnrýnd fyrir seinagang

Ragnheiður Elín Árnadóttir.
Ragnheiður Elín Árnadóttir.

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega fyrir seinagang í að tryggja starfsemi gagnavera á Íslandi. Fjármálaráðherra segir stjórnvöld öll af vilja gerð til að greiða fyrir starfseminni.

Ragnheiður Elín Árnadóttir þingmaður sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sagði á Alþingi í morgun að íslensk gagnaver stæðu samkeppnislega ekki jafnfætis evrópskum gagnaverum. Hún gagnrýndi fjármálaráðherra fyrir seinagang í málinu, en hann hefði heitið því að jafna þessa samkeppnisstöðu og sagt gagnvaverin góðan fjárfestingakost. Þau notuðu hóflega mikla orku og sköpuðu mörg störf.

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra fjármálaráðuneytið og Ríkisskattstjóra hafa lagt mikla vinnu í að koma til móts við eigendur gagnavera og þá sérstaklega viðskiptavini þeirra. Það hafi verið sett í forgang að vinna að málum Verne Holding eftir að Alþingi samþykkti stefnu í málefnum þess fyrirtækis.

Mál fyrirtækisins hafi verið sent til eftirlistsstofnunar EFTA, ESA, og væri þar til skoðunar. Viðskiptavinir gagnaveranna hafi sett fram viðbótarkröfur í skattamálum og vildu t.d. ekki skrá starfsemi sína hér á landi. Málin væru því flóknari en margir héldu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×