Innlent

Sjóðsfélagar endurgreiði ekki

Peningar kónur og evrur
Peningar kónur og evrur
Nýju bankarnir, eða þeir sem högnuðust á kaupum á eignum peningamarkaðssjóða gömlu bankanna, gætu þurft að greiða ríkinu til baka þá fjárhæð sem varið var til kaupanna. „Viðskiptavinir þeirra, fólkið sem lagði fé sitt í sjóðina þarf hins vegar ekki að greiða neitt,“ segir Per Sanderud, forseti Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, í samtali við Fréttablaðið.

ESA greindi frá því í gær að hafin væri formleg rannsókn á kaupum Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans á skuldabréfum peningamarkaðssjóða sem gömlu bankarnir starfræktu. Rannsóknin lýtur að því hvort kaupin feli í sér ríkisaðstoð í skilningi 61. greinar EES-samningsins. Á meðal þess sem ESA skoðar er hvort viðskiptalegar forsendur hafi legið að baki kaupum bankanna.

Eftir bankahrunið varð mikil óánægja með að neyðarlögin sem sett voru við yfirtöku á bönkunum tryggðu ekki eign einstaklinga og fyrirtækja í peningamarkaðssjóðum með sama hætti og innstæður í bönkunum. Björgvin G. Sigurðsson, þá viðskiptaráðherra, sagði reynt að lágmarka tjón sjóðsfélaga. Fjármálaeftirlitið beindi þeim tilmælum til bankanna rétt eftir miðjan október, að slíta sjóðunum og greiða sjóðsfélögum út. Í kjölfarið keyptu bankarnir eignir sjóðanna fyrir 83,6 milljarða króna. Stór hluti eignanna hefur verið afskrifaður.

Sjóðunum var slitið í lok október og var viðskiptavinum þeirra greitt út allt frá 69 prósentum til 85 prósenta af eign þeirra. Fjögur fjármálafyrirtæki sem starfræktu álíka sjóði fengu ekki sambærilegt tilboð í eign sína. Þau töldu sig ekki sitja við sama borð. Lögmannsstofan Lex kærði málið fyrir þeirra hönd til ESA í apríl í fyrra. Sum fyrirtækjanna hafa ekki getað greitt úr sjóðum sínum að fullu.

Fjármálaráðuneytið hefur andmælt ESA og segir stjórnvöld ekki hafa gefið fyrirmæli um kaup á eignum sjóðanna. Slit þeirra hafi lotið einkaréttarlegu uppgjöri á þeim eftir fall bankanna. Óháðir aðilar hafi metið virði eigna sjóðanna. Sanderud segir niðurstöðu rannsóknarinnar kunna að liggja fyrir á næsta ári. - jab



Fleiri fréttir

Sjá meira


×