Telur herflug og björgunarflug ekki það sama 22. desember 2010 08:00 Borgarstjóri segir að ef þjóðhöfðingjar þurfi að sækja Ísland heim í herflugvélum geti þeir lent í Keflavík.fréttablaðið/vilhelm
Jóni Gnarr borgarstjóra þykir óeðlilegt að herflug og björgunarflug sé skilgreint í sama hóp varðandi lendingarleyfi hernaðarflugvéla á Reykjavíkurflugvelli. „Þarna er um gjörólíka hluti að ræða. Þetta þarf að vera skýrt í lögum,“ segir Jón. „Þessi áskorun er tilmæli frá borgarráði, sem lýsa vilja okkar. Við leggjumst að sjálfsögðu ekki gegn því að flugvélar og þyrlur í björgunarflugi lendi á Reykjavíkurflugvelli þegar þörf er á.“ Borgarráð skoraði einróma á utanríkisráðuneyti og flugmálayfirvöld að beita sér fyrir því að umferð herflugvéla um Reykjavíkurflugvöll verði stöðvuð. Verði tillagan samþykkt þýðir það meðal annars að björgunarþyrlur danska hersins fengju ekki lendingarleyfi á vellinum. Þjóðhöfðingjar sem fljúga í herfylgd fengju heldur ekki leyfi til lendingar á Reykjavíkurflugvelli. „Ef þjóðhöfðingi þarf að koma til Íslands og vill koma í herflugvél, þá getur hann lent á Keflavíkurflugvelli, keyrt þaðan til Reykjavíkur og í leiðinni séð meira af okkar fallega landi og stórbrotinni náttúru Suðurnesja,“ segir Jón spurður um það tiltekna mál. „Reykjavíkurflugvöllur á að þjóna innanlandsflugi og það eru engar ástæður sem kalla á að herflugvélar lendi í Reykjavík, frekar en á alþjóðaflugvellinum í Keflavík, þar sem menn eru kannski betur í stakk búnir að bregðast við ef eitthvað fer úrskeiðis.“ Þá segist Jón persónulega ekki hafa neitt umburðarlyndi gagnvart hernaðarumsvifum.- sv
Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Innlent Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Sjá meira