Tekið undir tillögu um rannsókn á Íbúðalánasjóði 8. desember 2010 06:00 Íbúðalánasjóður var ræddur í gær að ósk Guðlaugs Þórs Þórðarsonar Sjálfstæðisflokki. fréttablaðið/gva
Guðbjartur Hannesson félagsmálaráðherra er fylgjandi sjálfstæðri og óháðri rannsókn á starfsemi Íbúðalánasjóðs frá aðdraganda breytinganna á fjármögnun og lánareglum Íbúðalánasjóðs sem hrint var í framkvæmd á árinu 2004. Ráðherrann sagði á Alþingi í gær að hann styddi heilshugar tillögu Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur, Samfylkingu, um slíka rannsókn. Guðmundur Steingrímsson, Framsóknarflokki, tók undir að rétt væri að rannsaka: „Ég get skilið að það sé rannsóknarefni að Íbúðalánasjóður skuli enn standa.“ „Hér fór allt fjármálakerfið á hliðina,“ sagði Guðmundur, „en Íbúðalánasjóður stendur og er enn þá hornsteinninn að íbúðalánakerfi landsmanna.“ Eiginfjárhlutfall sjóðsins hefði verið 7-8% fyrir hrun en væri nú 1,5-2%. Einnig væri rannsóknarefni hvers vegna sjóðurinn hefði ekki verið einkavæddur þrátt fyrir háværar kröfur frá innlendum stjórnmálaöflum, erlendum eftirlitsstofnunum og matsfyrirtækjum. Guðmundur sagðist þakka Framsóknarflokknum það að hafa komið í veg fyrir þá einkavæðingu. Fram kom við umræðuna að ríkið þyrfti að leggja fram 22 milljarða króna til sjóðsins fyrir árslok til að mæta afskriftum og tryggja að eiginfjárhlutfall yrði þá ekki undir fimm prósentum. 2,2 milljarða þarf að leggja fram til viðbótar fyrir árslok 2011. Guðbjartur Hannesson sagði ljóst að afskriftir sjóðsins ykjust vegna samkomulagsins á dögunum um aðgerðir í þágu heimilanna en ekki væri ljóst hve mikil aukningin yrði. Guðmundur Steingrímsson sagði að svara þyrfti betur hvers vegna gera ætti ákveðnar kröfur um eiginfjárhlutfall til sjóðs sem væri í eigu ríkisins og rekinn með ríkisábyrgð. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Ísland ýmist í Meistaradeildinni eða um miðja aðra deild Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Sjá meira