Leggst gegn starfsemi ECA á Suðurnesjum Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. desember 2010 17:38 Ögmundur Jónasson óttast að undirbúningur að starfsemi ECA myndi kosta stjórnvöld umtalsverða fjármuni. Mynd/ Stefán.
Ögmundur Jónasson, ráðherra samgöngumála, leggst gegn því að ECA hefji rekstur flugþjónustu fyrir herflugvélar hér á landi. Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, spurði Ögmund út í málið á Alþingi í dag. Ögmundur sagði að undirbúningur þess að auðvelda ECA, að hefja hér starfsemi myndi kosta umtalsverða fjármuni úr ríkissjóði. „Þar værum við að mínu mati að tefla mjög mikilvægum fjárhagslegum hagsmunum og atvinnuhagsmunum Íslendinga í tvísýnu vegna þess að í flugheiminum, sem er mjög viðkvæmur, eiga Íslendingar mikilla hagsmuna að gæta. Það er mjög eindregin afstaða flugmálayfirvalda að þetta sé ekki ráðlegt, það sé ekki ráðlegt að ráðast í þetta verkefni og menn eigi ekki að láta undan þrýstingi í þeim efnum. Ég er mjög eindregið á þeirri skoðun að það væri ekki gott ráð á heildina litið að ráðast í þetta verkefni, alls ekki," sagði Ögmundur á Alþingi í dag. Sigurður Ingi mótmælti þeim orðum ráðherrans að verkefnið myndi hafa í för með sér kostnað fyrir hið opinbera. „Til að mynda hefur það komið fram að fyrirtækið hefur lýst því yfir að það hyggst greiða allan kostnað sem á ríkið mun falla," sagði Sigurður Ingi. Hann sakaði ráðherra í ríkisstjórninni um að þvælast fyrir atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum. .
Mest lesið Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Innlent „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Innlent Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Innlent Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum Innlent „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Innlent Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Innlent Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Erlent Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna Innlent Fleiri fréttir Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Hætta á að námsframboð dragist saman Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Þörf sé á að endurhugsa fjármögnum NPA-þjónustu Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Sjá meira