Segir skattahækkanir vera neyðarúrræði Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. júlí 2010 15:42 Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir nær að auka atvinnu en að hækka skatta. Mynd/ GVA.
Bjarni Benediktsson segir að þær skattatillögur sem kynntar voru í gær og voru unnar af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum gangi þvert gegn því sem ríkisstjórnin hafi viljað gera. „Þegar að hugmyndir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru skoðaðar að þá eru nokkur atriði áberandi sem að skipta miklu en hafa kannski ekki fengið nægjanlega athygli," segir Bjarni. Í fyrsta lagi telji Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn það óskynsamlegt að nota skattkerfið til tekjujöfnunar. Þetta sé hins vegar yfirlýst stefna ríkisstjórnarinnar. Í öðru lagi gangi allar hugmyndir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins út á það að einfalda skattkerfið. Ríkisstjórnin hafi hins vegar verið að flækja það. „Í þriðja lagi segir Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn að ekki eigi að hækka skatta fyrr en öll önnur úrræði hafa verið tæmd. En þetta er alltaf fyrsta úrræðið sem ríkisstjórnin grípur til," segir Bjarni. Hann segir því að skýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sé algjör falleinkunn fyrir stefnu ríkisstjórnarinnar í skattamálum. Bjarni segir þó alvarlegast að það þurfi ekki nýja skatta heldur að skapa ný störf í einkageiranum til þess að taka við þeim störfum sem muni tapast úr opinbera geiranum. „Við verðum að svara spurningunni um það hvernig við ætlum að vaxa - hvernig við ætlum að skapa hagvöxt. Og ég veit að það atriði brennur mjög á Alþjóðagjaldeyrissjóðnum," segir Bjarni. Hann segist telja að það væri nær af ríkisstjórninni að deila með þjóðinni áhyggjum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins af því hvernig Íslendingar ætli að ná hagvexti frekar en að kynna neyðarúrræði þeirra í skattamálum sem gangi öll í öfuga átt við það sem ríkisstjórnin vilji gera.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Fleiri fréttir Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Sjá meira