Málskostnaður Jóns Ásgeirs þegar nærri heildareignum 13. júlí 2010 06:30 Jón Ásgeir þarf að greiða minnst 140 milljónir í málskostnað vegna deilunnar um kyrrsetninguna í London, þar af 28 milljónir fyrir lok næstu viku. Ekki liggur fyrir hvernig hann á að standa straum af málstkostnaðinum þegar eignir hans eru frystar.
Jón Ásgeir Jóhannesson gæti þurft að greiða alls um 180 milljónir íslenskra króna fyrir það eitt að verjast kyrrsetningu eigna sinna í London. Það eru 75 prósent af uppgefnum heildareignum hans, sem hann má þó ekki hreyfa við. Dómari í London hafnaði á föstudag kröfu Jóns Ásgeirs um að alheimskyrrsetningu á eignum hans yrði aflétt. Þegar dómarinn kvað upp úrskurð sinn tilkynnti hann jafnframt að Jón Ásgeir skyldi bera eigin 600 þúsund punda málskostnað, ríflega 110 milljónir króna, sem og málskostnað slitastjórnar Glitnis. Málskostnaður slitastjórnarinnar nam 350 þúsund pundum og var Jóni Ásgeiri gert að greiða 150 þúsund pund af því, ríflega 28 milljónir, eigi síðar en 30. júlí. Dómarinn á svo eftir að taka afstöðu til þess hvort 200 þúsund punda eftirstöðvarnar falla einnig á Jón Ásgeir. Samkvæmt eignalistanum sem Jón Ásgeir skilaði inn til dómsins í London eru allar eignir hans virði tæplega 240 milljóna íslenskra króna, og þar af eru innstæður á bankareikningum einungis um átta og hálf milljón. Þar að auki hafa eignirnar verið frystar þannig að hann má ekki hreyfa við þeim, ekki heldur til að greiða málskostnaðinn. Málaferli eru einnig hafin í New York vegna stefnu slitastjórnarinnar á hendur sjömenningunum sem sakaðir eru um að hafa tæmt bankann innan frá. Ekki liggur fyrir yfirlit yfir málskostnað þar en að sögn Páls Eiríkssonar, sem situr í slitastjórninni, má gera ráð fyrir að hann verði töluvert hærri en sá í London þegar yfir lýkur, að því gefnu að Jón Ásgeir og meðstefndu grípi til ýtrustu varna. Páll segir slitastjórnina ekki hafa nein tæki eða úrræði til að kanna hvernig Jón Ásgeir muni standa skil á málskostnaðinum. „Það er bara hans að leysa úr því, " segir Páll. Sem áður hafa slitastjórn og dómarinn breski efasemdir um að eignalistinn sem Jón Ásgeir skilaði sé fullnægjandi. Ef sannanir fást fyrir því að sá grunur sé á rökum reistur á Jón Ásgeir yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi fyrir að ljúga til um eigur sínar. Slitastjórnin hefur unnið hörðum höndum að því upp á síðkastið að reyna að þefa uppi meinta falda sjóði. Slitastjórnin stendur nú í deilu við Jón Ásgeir og konu hans í Bandaríkjunum um aðgang að gögnum frá hússtjórn glæsihýsis þar sem þau eiga íbúðir og Royal Bank of Canada sem slitastjórnin telur að gæti hugsanlega varpað ljósi á flókna fjármagnsflutninga.
Mest lesið „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Erlent Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Innlent „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Innlent Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Innlent Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent Bílvelta í Ártúnsbrekku Innlent Fleiri fréttir Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Úkraínumenn á Íslandi minntust Kjartans Sævars Lægðirnar nái ekki til landsins Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Stoltur yfir arfleifð Bryndísar Klöru en söknuðurinn sár Spila styrktarleik til minningar um Patrek: „Hans er sárt saknað“ Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Segja gögn um verktakagreiðslur tekin úr samhengi Innflutningi stýrt frá Litla-Hrauni Hefjast handa á rúmlega hundrað íbúðum fyrir fyrstu kaupendur Grikki grunaður um morð látinn dúsa tvær vikur til viðbótar Hættur við að fá dómkvadda matsmenn vegna varnargarða Bílvelta í Ártúnsbrekku Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út „Málþófsflokkarnir“ séu mættir „í fullum skrúða með leikrit og skuespil“ Ræða við vitni og hraðakstur til skoðunar Bein útsending: Færri börn undir þrettán ára á TikTok „Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ Sérhæfð móttaka Landspítala fær nafn Bryndísar Klöru Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum Hafi tekið barnsmóður sína hálstaki Fjöldahandtökur á Íslandi og prófessor varar við tengingu bóta við vísitölu Bein útsending: Einföldun Evrópuregluverks Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Nálgumst 400 þúsund og um átján prósent íbúa eru erlendir ríkisborgarar Sjá meira