Dregur umsókn til baka vegna hugmynda ráðherra SB skrifar 26. ágúst 2010 22:15 Deilt er um ráðningu framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs.
Ásta Bragadóttir starfandi framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, hefur ákveðið að draga umsókn sína um starf framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs til baka í kjölfar hugmynda félagsmálaráðherra að skipa valnefnd til að meta hæfi umsækjanda um stöðu framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs. Hugmyndir félagsmálaráðherra voru kynntar á fundi stjórnar Íbúðalánasjóðs í dag og bókaðar í fundargerð. Í bréfi Ástu segir: „Í kjölfar ofangreindrar bókunar hef ég ákveðið að draga umsókn mína um starf framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs til baka." „Umsóknarferlið allt hefur tekið langan tíma og enn sér ekki fyrir endann á því," segir Ásta Bragadóttir jafnframt í bréfi til samstarfsmanna sem fréttastofa hefur undir höndum. Vandræðagangur hefur einkennt ráðningu í stöðu framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs og hefur ráðningaferlið tekið lengri tíma en ætlað var. Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur áður frestað að taka fyrir ráðningu fnýs forstjóra í stað Guðmundar Bjarnasonar sem lét af störfum um síðustu mánaðamót. Alls bárust tuttugu og sex umsóknir um starfið og hafa fjórir umsækjendur verið boðaðir í viðtal. Meðal þeirra eru Ásta H. Bragadóttir, sem er aðstoðarframkvæmdastjóri og starfandi framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, og Yngvi Örn Kristinsson, fyrrverandi forstöðumaður hjá Landsbanka Íslands. Hann hefur verið starfað sem ráðgjafi félagsmálaráðherra. „Sú leið sem stjórn ÍLS hefur nú ákveðið að fara, að fenginni tillögu ráðherra, mun vonandi leiða til þess að ákvörðun verði tekin fljótlega um ráðningu. Mitt nafn verður þó ekki í þeim potti umsækjenda sem til greina koma, enda lít ég svo á að þar sem stjórnin treysti sér ekki til að taka ákvörðun, byggða á því ráðningarferli og viðtölum sem nú þegar hafa farið fram, sé það fullreynt að af ráðningu minni verði." Í lok bréfsins segir Ásta: „Ég vil sérstaklega þakka ykkur öllum einstakan stuðning og hlýhug nú í sumar og ég verð að segja að þrátt fyrir vonbrigði um að hafa ekki „landað" starfinu, þá bý ég að því að starfsfólk ÍLS hafi litið svo á að ég væri hæf til að gegna stöðu framkvæmdastjóra. Fyrir það vil ég þakka enn og aftur."
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Sjá meira