Innlent

Líkt og menn hafi borað niður á kókaínæð

Andri Snær Magnason, rithöfundur.
Andri Snær Magnason, rithöfundur. Mynd/Stefán Karlsson
„Geðveikin er núna augljós í jarðvarmabransanum. Þar hafði þróunin verið jöfn og stöðug frá hitaveituvæðingunni á kreppuárunum. Nú er engu líkara en menn hafi borað niður á kókaínæð og fyllt rækilega á sér nasirnar," segir rithöfundurinn Andri Snær Magnason í grein í Fréttablaðinu í dag.

Hann segir að það sé einsdæmi í veröldinni að þjóð drekki fyrirtækjum sínum í skuldir til þess að tvöfalda orkuframleiðsluna og tvöfalda hana aftur með tilheyrandi braski.

„Að tvöfalda orkuframleiðslu í þróuðu ríki á fimm árum er ekki aðeins fáheyrt heldur væri það talið fáránlegt rugl í öllum nágrannalöndum okkar. Í flestum iðnríkjum eykst orkuframleiðsla um einhver 2-3% á ári," segir Andri og bætir við vöföldun væri óhugsandi þar margsannað væri að of stórar fjárfestingar eyðileggji meira en þær skapa. „Á Íslandi var hins vegar markmiðið að tvöfalda orkuframleiðsluna aftur næstu fimm árin með álbræðslum í Helguvík, Húsavík og reyndar gott betur með þreföldun í Straumsvík."

Andri segir að það hafi verið geðveiki að tífalda bankakerfið hér á landi á sjö árum. Tæknilega ómögulegt sé að rækta upp alla þá þekkingu og reynslu sem þurfi til að byggja upp og reka slíkt kerfi á svo skömmum tíma.

„Jafnvel ekki með því að moka heilli kynslóð gegnum bisnessskóla og bjarga þeim sem fæddust fyrir 1980 með skemmri skírn á MBA-námskeiði. Það er bara ekki hægt. Þótt strákur sem er enn þá með fósturfituna í hárinu fái tvær milljónir á mánuði þá verður hann ekki reynslumeiri, klárari eða ábyrgari fyrir vikið. Miklu líklegra að hann verði klikkaður. Það kom líka í ljós," segir Andri í greininni sem hægt er að lesa hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×