Innlent

Betur fór en á horfðist þegar bíll valt

Mynd/Pjetur
Betur fór en á horfðist þegar tveir menn sluppu án meiðsla þegar bíl sem þeir voru í valt við gatnamót Hringbrautar og Bústaðavegar í nótt. Að sögn lögreglu var aðkoman afar slæm og þurfti að loka veginum um stund. Ökumaðurinn, karlmaður á miðjum aldri, er ekki grunaður um ölvun en talið er að hraðakstur sé orsök slyssins. Bíllinn er ónýtur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×