Innlent

Á 166 kílómetra hraða við Selfoss

Mynd/Pjetur
Ungur ökumaður var stöðvaður á ofsahraða austan við Selfoss á fjórða tímanum í nótt. Ökumaðurinn, sem fékk bílpróf í vor, mældist á 166 kílómetra hraða.Hann var færður á lögreglustöðina á Selfossi þar sem hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Ökumaðurinn ungi á yfir höfði sér háa sekt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×