Innlent

Samfylkingarfélag hafnar samningaleiðinni

Mynd/Pjetur
Aðalfundur Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ hafnar með öllu svokallaðri samningaleið sem starfshópur um endurskoðun fiskveiðistjórnarkerfisisns lagði nýverið fram. Samfylkingarmenn í Mosfellsbæ vilja að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið.

Starfshópurinnv var skipaður í júlí 2009. Verkefnið var að skilgreina helstu álitaefni sem fyrir hendi eru og setja fram valkosti sem líklegir væru til að sem víðtækust sátt náist um fiskveiðistjórnunina meðal þjóðarinnar.

Starfshópurinn mælir eindregið með að farin verði svokölluð samningaleið. Er það túlkun fulltrúa innan nefndarinnar og hagsmunaaðila að það útiloki fyrningarleiðina.

„Samfylkingarfélagið í Mosfellsbæ krefst þess að framkomnar tillögur starfshópsins verði lagðar undir þjóðaratkvæði. Aðeins með því móti er hægt að fá fram raunverulegan vilja þjóðarinnar til þessa máls," segir í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×