Galli í Hörpu hleypur á hundruðum milljóna króna Þorbjörn Þórðarson skrifar 4. ágúst 2010 18:30
Tjónið vegna galla í stálvirkinu sem heldur glervegg við suðurhlið Hörpunnar hleypur á hundruðum milljóna króna. Taka þarf niður hluta af stálvirkinu þar sem prófanir sýndu að veggurinn þolir ekki mesta vindálag sem búast má við á næstu árum. Gallann má til mistaka kínversks undirverktaka Íslenskra aðalverktaka. Kínverjarnir hafa fallist á að bera tjónið. Íslenskir aðalverktakar hafa krafist þess af framleiðanda glerhjúpsins að stálvirkið verði tekið niður og nýtt sett upp. Tjónið hleypur á hundruðum milljóna króna, að sögn Sigurðar Ragnarssonar, framkvæmdastjóra hjá ÍAV, sem hefur yfirumsjón með byggingu hússins. Sigurður baðst undan viðtali, en sagði í samtali við fréttastofu að vandamálið fælist í hornum á stálkubbunum. Í marsmánuði 2010 uppgötvaðist sprunga í horni á einum kubbnum. Sérfræðingar ÍAV hófu þegar rannsókn og í ljós kom í prófunum að efnisinnihald stálkubbanna var ekki eins og það átti að vera. Sigurður sagði að prófanir hefðu leitt í ljós að hornin hefðu ekki verið meðhöndluð rétt eftir að þau voru steypt í mót, en burðarvirki af þessu tagi þurfi að hafa ákveðna seiglu sem stálkubbarnir hafi ekki. Sigurður sagði að vegna öryggissjónarmiða væri því ekki forsvaranlegt að hafa þá á húsinu. Kínverska verktakafyrirtækið Lingyun sá um uppsetningu glerhjúpsins sem undirverktaki ÍAV og hefur fyrirtækið fallist á að greiða fyrir uppsetningu á nýjum vegg. Að sögn Sigurðar mun þetta ekki seinka opnun Hörpunnar en stefnt er að því að vígja húsið í maí á næsta ári. Sjá má stálkubbana sem um ræðir og nýjar myndir af Hörpunni í myndskeiðinu með fréttinni.
Tengdar fréttir Þurfa að endurbyggja hluta af Hörpu Glerveggurinn sem myndar suðurhlið Tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu stenst ekki mesta vindálag sem búast má við á næstu 50 árum, samkvæmt rannsóknum sem gerðar hafa verið. Að mati aðalverktaka hússins, ÍAV, er nauðsynlegt að taka vegginn niður og endurbyggja. Í tilkynningu frá aðstandendum Hörpu kemur fram að ekki sé gert ráð fyrir að þetta muni seinka opnun hússins.í maí á næsta ári. 4. ágúst 2010 14:06 Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira
Þurfa að endurbyggja hluta af Hörpu Glerveggurinn sem myndar suðurhlið Tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu stenst ekki mesta vindálag sem búast má við á næstu 50 árum, samkvæmt rannsóknum sem gerðar hafa verið. Að mati aðalverktaka hússins, ÍAV, er nauðsynlegt að taka vegginn niður og endurbyggja. Í tilkynningu frá aðstandendum Hörpu kemur fram að ekki sé gert ráð fyrir að þetta muni seinka opnun hússins.í maí á næsta ári. 4. ágúst 2010 14:06