Hátíðarkvöldverður kokkanna 7. janúar 2010 04:00 Steinn Óskar Sigurðsson matreiðslumaður segir uppselt á kvöldverðinn. Allir bestu matreiðslumenn ársins leggja til krafta sína. Fréttablaðið/anton
Hinn árlegi Hátíðarkvöldverður klúbbsins fer fram laugardagskvöldið næstkomandi í Turninum í Kópavogi. Kvöldverðurinn hefur verið haldinn óslitinn síðastliðin tuttugu og þrjú ár og er gríðarlega vinsæll viðburður ár hvert. Steinn Óskar Sigurðsson, formaður nefndar um Hátíðarkvöldverðinn, segir að uppselt sé á kvöldverðinn, en seldir eru 220 miðar og hafa fastagestir forgang í þeim efnum. „Þetta er gríðarlega vinsælt og mikil eftirspurn miðað við miðafjöldann ár hvert. Miðinn kostar tuttugu og átta þúsund og innifalið í því verði er tólf rétta matseðill með vínum og eru það okkar færustu matreiðslumenn sem sjá um matreiðsluna,“ segir Steinn Óskar. Ábyrgðarmaður kvöldsins er Sigurður Gíslason, framkvæmdastjóri Veisluturnsins, og meðal þeirra matreiðslumanna sem munu leggja fram krafta sína þetta kvöld eru Jóhannes Steinn Jóhannesson, matreiðslumeistari ársins 2009, Hrefna Rósa Jóhannsdóttir Sætran, yfirkokkur á Fiskmarkaðnum, Friðgeir Eiríksson, yfirkokkur á Hótel Holti, Gunnar Karl Gíslason, kokkur á Dilli, auk annarra matreiðslumeistara. Steinn Óskar segir að sérstakt þema sé valið fyrir hvert ár og í ár er þemað flóra Íslands. „Við göngum út frá þessu þema í matreiðslunni og notum auðvitað íslenskt hráefni og annað sem við fáum á þessum árstíma. Við fengum einnig Eggert Pétursson til að hanna undirdiskinn sem gestir fá með sér heim að kvöldverði loknum.“ Aðspurður segir Steinn Óskar mikið stress fylgja kvöldverðinum en að aldrei hafi komið til ósættis í eldhúsinu. „Ísland er svo lítið land og hér vinna og standa kokkarnir saman. Hingað til hefur þetta alltaf gengið rosalega vel fyrir sig,“ segir hann að lokum. - sm
Mest lesið Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Lífið Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Lífið Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Bob Mackie er látinn Lífið Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Lífið samstarf Fleiri fréttir Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Sjá meira