Úr útrás í heilsuráðgjöf 7. janúar 2010 04:00 Þórdís tók þátt í útrásinni, en starfar nú sem cross fit-þjálfari og heilsuráðgjafi. Hreiðar Már, bróðir Þórdísar, er einnig crossfittari, að hennar sögn. fréttablaðið/anton „
Ég hef alltaf haft áhuga á góðu og heilbrigðu lífi. Þrátt fyrir að vera í bisness þá hef ég reynt að passa að vera í ágætisformi og hugsa um hvað ég borða,“ segir Þórdís Jóna Sigurðardóttir. Þórdís starfar nú sem cross fit-þjálfari í Sporthúsinu ásamt því að veita heilsuráðgjöf. Nýja starfið er talsvert frábrugðið því gamla, en hún var áberandi í íslensku viðskiptalífi þegar góðærið stóð sem hæst. Hún var meðal annars yfirmaður fjölmiðlafjárfestinga Baugs, forstjóri Stoða Invest og stjórnarformaður Dagsbrúnar, ásamt því að vera hluthafi í félaginu. Dagsbrún réðist í nokkur útrásarverkefni, svo sem dagblaðið Nyhedsavisen í Danmörku og kaup á bresku prentsmiðjunni Windham. „Ég er að útskrifast sem heilsuráðgjafi. Ég er búin að vera í námi í New York og er bæði að æfa og þjálfa cross fit ásamt því að veita heilsuráðgjöf,“ segir Þórdís, en hún neyddist til að skipta um starf í kjölfar hrunsins. „Þá fór ég að æfa af meiri krafti, byrjaði að þjálfa og fór í nám. Ég tók level 1-réttindi til að kenna cross fit. Þetta er rosalega skemmtilegt og uppbyggilegt og ég nýt mín bara vel.“ Spurð hvort hún stefni á útrás í líkamsræktarbransanum segist hún ekki stefna á það. En ertu alveg hætt að skipta þér af viðskiptum? „Algjörlega, nema mínum eigin rekstri í kringum þetta. Ég bý að mikilli og góðri reynslu – þrátt fyrir að hún sé öðruvísi en ég hafði vonað. Ég reyni að nýta hana til góðs. Læra af henni.“ Þórdís er systir Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings. Hann var grennri forstjóri bankans og virðist vera í fínu líkamlegu formi. En ætli Þórdís sé búin að plata hann í cross fit? „Já, hann er crossfittari,“ segir hún og hlær. Hún bætir við að hann hafi þó ekki komið í tíma til hennar þar sem hann býr í Lúxemborg í dag og stundar æfingarnar þar. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Fleiri fréttir Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Sjá meira