Metár í kvikmyndahúsum 7. janúar 2010 04:30 Aldrei fleiri í bíó. Avatar er tekjuhæsta kvikmyndin árið 2009 en vinsælust var gamanmyndin The Hangover. Karlar sem hata konur sló eftirminnilega í gegn á árinu og Harry Potter á sem fyrr sína dyggu aðdáendur.
Stórmynd James Cameron var tekjuhæsta kvikmynd síðasta árs þrátt fyrir að hafa verið aðeins tíu daga í sýningu. Jóhannes var vinsælasta íslenska kvikmyndin á árinu. Samkvæmt lista sem SMÁÍS sendi frá sér náði kvikmynd James Cameron, Avatar, þeim ótrúlega árangri að vera tekjuhæsta kvikmyndin í íslenskum kvikmyndahúsum á árinu sem var að líða. Árangur sem verður eflaust seint sleginn enda var myndin frumsýnd um miðjan desember. Raunar náði Avatar toppsætinu af Hangover ekki fyrr en á síðustu sýningunni og var munurinn á þeim aðeins rúmar þrjátíu þúsund krónur. Avatar náði hins vegar ekki að skáka Hangover í áhorfendafjölda því fleiri sáu gamanmyndina eða rúm sextíu þúsund. Þeir hafa eflaust legið í krampakasti yfir Áramótaskaupinu sem hafði ótal tilvísanir í myndina. Kreppan virðist ekki hafa skotið rótum í kvikmyndahúsum borgarinnar því samkvæmt tölum frá SMÁÍS þá er árið 2009 það stærsta í sögu kvikmyndasýninga hér á landi. Aðsóknin jókst um sjö prósent og heildartekjur voru tólf prósentum meiri en árið 2008. Gamanmyndin Jóhannes var vinsælasta íslenska kvikmyndin samkvæmt tölum frá SMÁÍS. Alls komu 36 þúsund gestir til að sjá Ladda fara á kostum með Unni Birnu Vilhjálmsdóttur sér við hlið og sjálfan Trölla, Stefán Karl Stefánsson. Aðstandendur Algjörs Sveppa og leitarinnar að Villa geta líka vel við unað; ríflega 32 þúsund manns greiddu sig inn á þessa eldhressu barna- og fjölskyldumynd með Sverri Þór og Vilhelm Anton í aðalhlutverki. Bjarnfreðarson, kvikmynd Ragnars Bragasonar, nær níunda sætinu þrátt fyrir að hún hafi ekki farið í almennar sýningar fyrr en 26. desember. Sérstaka athygli vekur að tvær sænskumælandi myndir eru inni á topp tuttugu lista SMÁÍS. Það eru kvikmyndirnar Karlar sem hata konur og Stúlkan sem lék sér að eldinum sem báðar eru byggðar á samnefndum bókum Stiegs Larsson. Yfir áttatíu þúsund manns sáu þessar tvær myndir, rúm fimmtíu þúsund mættu á Karlar sem hata konur en þrjátíu á Stúlkuna sem lék sér að eldinum. Aðdáendur Larsson bíða spenntir eftir þriðju myndinni sem væntanleg er í kvikmyndahús von bráðar. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið „Ég fæ það bara strax og ég set hann inn“ Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Fleiri fréttir Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara strax og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Sjá meira