Innlent

Byggðastofnun fær 3,6 milljarða - hálfur milljarður í ferðamannastaði

Ríkisstjórnin á blaðamannafundi.
Ríkisstjórnin á blaðamannafundi.

Ríkisstjórnin tilkynnti í hádeginu að eigið fé Byggðastofnunnar yrði aukið um 3,6 milljarða í þeim tilgangi að styðja við atvinnuuppbyggingu. Ríkisstjórnin fundaði í morgun en situr nú á blaðmannafundi í Stjórnaráðinu.

Á fundinum kom einnig fram að rúmlega hálfum milljarð verði veitt í uppbyggingu vinsælla ferðamannastaða á Íslandi.

Þá tekur lánatryggingasjóður kvenna til starfa á ný. Þetta er meðal annars liður í átaki ríkisstjórnarinnar um margvísislegar aðgerðir í atvinnu- og nýsköpun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×