Innlent

Umferðin minnkar stöðugt

Vegagerðin mælir fjölda bíla sem fara um Hvalfjarðargöngin. fréttablaðið/pjetur
Vegagerðin mælir fjölda bíla sem fara um Hvalfjarðargöngin. fréttablaðið/pjetur
Hratt hefur dregið úr helgarumferð til og frá höfuðborgarsvæðinu undanfarnar helgar. Umferðin hefur dregist stöðugt saman frá því um miðjan júlí, en jókst aðeins aftur um verslunarmannahelgina.

Umferðin var um átta prósentum minni aðra helgina í ágúst en hún var um verslunarmannahelgina. Helgina þar á eftir dróst hún svo saman um sjö prósent til viðbótar og fóru þá um 167 þúsund bílar um sex talningarstaði Vegagerðarinnar. Sömu helgi í fyrra var óvenjulega mikil umferð og skýrir það að umferðin í ár var rúmum ellefu prósentum minni en þá.

Vegagerðin mælir umferðina við Ingólfsfjall, á Hellisheiði og á Sandskeiði til austurs og á Kjalar-nesi, í Hvalfjarðargöngum og á Hafnarmelum til norðurs.

Mest var umferðin í sumar helgina 16. til 18. júlí, þegar tæpir 200 þúsund bílar fóru til og frá höfuðborgarsvæðinu. Vegagerðin býst við því að umferð dragist áfram saman það sem eftir er af ágúst. - þeb



Fleiri fréttir

Sjá meira


×