Þúsundir gætu þurft að leita á náðir sveitarfélaganna 23. ágúst 2010 12:24 Halldór Halldórsson, Samband íslenskra sveitarfélaga. Mynd/Anton Brink
Þúsundir manna gætu þurft að leita á náðir félagsþjónustu sveitarfélaganna, verði réttur til atvinnuleysisbóta ekki lengdur í fimm ár, segir formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Félagsmálaráðherra hefur ekki svarað því af eða á, hvort bótaréttur verði lengdur. Nærri 13.600 manns eru á atvinnuleysisbótum um þessar mundir, í þrjú ár að hámarki. Fleiri eru þó líklega án vinnu því eins og fram kom í fréttum RÚV í gær hefur tæplega 4300 manns verið synjað um atvinnuleysisbætur á þessu ári, af ýmsum ástæðum. Samband íslenskra sveitarfélaga hvatti félagsmálaráðherra í sumarbyrjun til þess að lengja bótatímann í fimm ár. Halldór Halldórsson, formaður Sambandsins, segir málið hafa verið rætt á samráðsfundum með ráðuneytinu. „Þá hefur verið vel tekið í þetta en jafnframt minnt á að það væri verið að skoða margra aðra þætti eins og t.d. að koma fólki aftur út á vinnumarkaðinn. Þó það sé bara tímabundið öðlast það réttinn að nýju. Við höfum ekki fengið formlegt svar við þessu í aðra hvora áttina," segir HalldórMyndi þyngja rekstur sveitarfélaganna Til skamms tíma gat fólk þegið atvinnuleysisbætur í raun í ótakmarkaðan tíma en fyrir þrettán árum var bótaréttur styttur í fimm ár og síðar í þrjú ár. „Þegar ástandið er þannig að það vantar atvinnu þá teljum við rétt að miða við fimm ár. Þannig að þetta gæti þess vegna verið tímabundin ráðstöfun," segir Halldór. Tvö ár eru síðan atvinnuleysi snarjókst og því styttist í að hluti atvinnulausra verði búinn að nýta sinn bótarétt. Halldór segir því að nokkur þúsund manns gætu þar með bæst í félagslegt net sveitarfélaganna. „Það er alveg ljóst að það myndi þyngja verulega á rekstri sveitarfélaganna. Það er óþarfi að leggja það á þau ef við höfum önnur viðráðanlegri úrræði."
Mest lesið „Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“ Innlent Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Innlent Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Innlent Sigldi inn í Seyðisfjörð með hvalshræ á stefninu Innlent „Easy come, easy go“ Innlent Ekki talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti Innlent Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Innlent Vill banna nikótínvörur með bragði og gera umbúðirnar ljótar Innlent Gera Austurstræti og Veltusund varanlega að göngugötum Innlent Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð Innlent Fleiri fréttir Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Hólavallagarður friðlýstur Gerir ráð fyrir að ljúka þingstörfum fyrir mánaðamót Ekki talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti Tæpur helmingur ætlar að flytja aftur til Grindavíkur Kvikmyndaskólinn lifir og skólagjöld verða hóflegri „Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“ Kvenréttindadagur: „Baráttan er ekki búin“ Vill banna nikótínvörur með bragði og gera umbúðirnar ljótar Leita ekki Sigríðar í dag Um helmingur Grindvíkinga segist líklega ætla að snúa aftur Sigríður tekur við formennsku af Silju Báru Sigldi inn í Seyðisfjörð með hvalshræ á stefninu „Easy come, easy go“ Gera Austurstræti og Veltusund varanlega að göngugötum Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Áframhaldandi landris í Svartsengi Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Vinir Gunnfaxa vonast til að bjarga Flugfélagsþristinum Jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð Pípari sagði skólp ástæðuna fyrir kókaíninu í blóðinu Harður árekstur þegar bíl var ekið í hlið á strætisvagni Sammála Attenborough og segir tegundir þurrkaðar út Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðar við leitina Íslendingar sem vilja komast heim, háhyrningatorfa og blokkamyndun Ók á húsvegg Hvorki Kalli Snæ né landlæknir vilja birta bréfið Norðfjarðargöng lokuð vegna elds í bifreið Sjá meira