Lausnir verði raunverulegar 23. ágúst 2010 03:30 inga dóra sigfúsdóttir
Er þörf á sérstökum úrræðum til að efla námsárangur drengja? Menntaráð Reykjavíkur skipaði í síðustu viku átta manna stýrihóp með fulltrúum skólastjóra, kennara, foreldra og sérfræðinga, sem ætlað er að vinna markvisst að því að efla námsárangur drengja í grunnskólum. Hvatinn að skipun stýrihópsins er sagður rannsóknir sem gerðar hafa verið við Menntavísindasvið HÍ, sem sýna marktækan mun á námsáhuga og námsánægju stúlkna og drengja strax í 1. bekk. Inga Dóra Sigfúsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskólann í Reykjavík og Columbia University í New York, hefur rannsakað kynjamun á námsárangri barna og unglinga frá árinu 1997. Hún segir þá staðreynd löngu kunna að strákum gangi og líði verr í skóla en stelpum. „Í grunnatriðum þykir mér skipan stýrihópsins þörf og góð. Staðan hefur verið ljós nokkuð lengi en ekki hefur verið brugðist við með beinum aðgerðum fyrr en nú, nema þá í sérstökum tilfellum þar sem ákveðnar tilraunir hafa verið gerðar. Hins vegar er nauðsynlegt að hafa í huga að þetta er flókið mál og byggja þarf á traustum rannsóknum sem miða að því að finna úrlausnir,“ segir Inga Dóra. Hún segir rannsóknir sínar og fleiri hafa leitt í ljós að strákar hafi almennt minna eftirlit og njóti minni stuðnings foreldra en stelpur, og þeir þættir séu veigamiklir í að skýra námsárangur. „Þetta eru þættir sem þarf að breyta í samfélaginu og þegar rýnt er í tölurnar kemur raunar í ljós að dregið hefur úr kynjamun í námsárangri. Samfélaginu hættir til að líta á skólann sem einangraða stofnun, en það sem gerist innan veggja skólanna á sér oft orsakir fyrir utan hann.“ Formaður stýrihópsins, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í menntaráði Reykjavíkurborgar, telur að kerfið hafi á einhvern hátt misst sjónar á strákum, meðal annars vegna fækkunar á körlum sem fyrirmyndum í skólakerfinu. Inga Dóra segir slíkt ekki eiga við rök að styðjast. „Ýmsar rannsóknir hafa sýnt fram á að engu máli skiptir fyrir námsárangur kynjanna hvort karlar eða konur kenni. Þetta er meðal þess sem þarf að gæta að þegar lausna er leitað, að þær séu raunverulegar og byggi á traustum heimildum,“ segir Inga Dóra Sigfúsdóttir. kjartan@frettabladid.is
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Fleiri fréttir Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna Sjá meira