Innlent

Sagt vinna gegn hagsmunum barna með úreltum kenningum

líf magneudóttir
líf magneudóttir
Ákvörðun menntaráðs Reykjavíkurborgar um að setja af stað stýrihóp til að efla árangur drengja í grunnskólum, var ekki einróma samþykkt innan ráðsins. Líf Magneudóttir, fulltrúi VG, er ósammála aðgerðinni og segir ekkert benda til þess að góður árangur stúlkna í skóla sé á kostnað drengja og hún gagnrýnir ákvörðun menntaráðs harðlega.

„Það er ekki hægt að gefa sér að drengir séu einsleitur hópur sem þarfnist eins og sama úrræðisins," segir Líf. „Rannsóknir sýna að munur er á nemendum eftir öðrum breytum en kyni, eins og efnahag foreldra og þátttöku þeirra í skólastarfi. Meirihlutinn er að vinna gegn hagsmunum barna með því að styðjast við úreltar kenningar."

Björn Pétursson, skólastjóri Melaskóla, telur málið flókið og erfitt sé að komast að einni niðurstöðu. „Skólinn er eitt, heimili er annað, fjölmiðlun enn annað. Það þarf að ræða við börnin til þess að komast að því hvað má betur fara. En ég tel að það sé góðra gjalda vert að rannsaka þetta sérstaklega."

Aðgerðirnar voru settar af stað meðal annars vegna þess að samkvæmt könnun Háskóla Íslands frá árinu 2008 eru drengir ekki eins ánægðir með nám í fyrstu bekkjum grunnskóla og stúlkur.- sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×