Töf forðaði stórum gjaldeyrislánum 23. ágúst 2010 06:00 Eftir tveggja ára hlé eru hafnar framkvæmdir við nýja heilsulind á Laugarvatni. Vatnið er vinsæll áfangastaður ferðamanna. Fréttablaðið/Vilhelm
Stefnt er að því að ný heilsulind verði opnuð í júní á næsta ári á reit gamla gufubaðsins á Laugarvatni. Framkvæmdir við heilsulindina hófust í sumar en hafa tafist í tvö ár eftir að bankahrunið setti áætlanirnar í uppnám. „Framkvæmdirnar mjakast, þetta gekk aðeins hægt í byrjun en er komið á góðan rekspöl núna,“ segir Jónas Jónasson verkefnastjóri framkvæmdanna. Fyrsta skóflustungan að nýja gufubaðinu var tekin 9. júní síðastliðinn en fullbúið verður það 750 fermetra náttúruleg heilsulind. Í heilsulindinni munu gestir geta notið sömu aðstöðu og var að finna í gömlu gufunni en náttúruleg gufa úr iðrum jarðar stígur upp á reitnum. Auk gufubaða verða laugar og heitir pottar á svæðinu ásamt útiaðstöðu. Gamla gufubaðið var rifið árið 2007 en þar til í júní fóru engar framkvæmdir fram á svæðinu. Nokkuð hefur borið á óánægju meðal heimamanna vegna tafanna og frágangs verkefnisins en gamla gufubaðið var fastur punktur í tilveru Laugvetninga um áratugaskeið. Spurður um töfina segir Hafþór Birgir Guðmundsson, sem er í varastjórn Gufu ehf. sem stendur að baki framkvæmdinni: „Þegar við vorum tilbúin að fara í gang skall bankakreppan á okkur og sem betur fór vorum við ekki farnir af stað því þá hefðum við sennilega verið búnir að taka stór gjaldeyrislán og allt hefði farið til fjandans, þannig að þetta lagðist í smá bið.“ Upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir 1.200 fermetra byggingu en Hafþór segir að ýmsir þættir hafi verið skornir niður. „Útlitslega séð er húsið mjög svipað en það var farið í miklar aðhaldsaðgerðir,“ segir Hafþór. Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri Bláskógabyggðar, segir alla á svæðinu spennta fyrir framkvæmdunum. „Það sáu margir eftir gamla gufubaðinu og fannst eitthvað vanta en það er nú samt meiri eftirvænting eftir því að hitt komi núna.“ magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Fleiri fréttir Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Sjá meira