Biðst afsökunar á að hafa flutt inn notuð reiðtygi Breki Logason skrifar 26. nóvember 2010 13:19 Valdimar Bergstað.
Karlmaður sem stöðvaður var í tollinum í fyrradag með notuð reiðtygi segir að um hugsunarleysi hafi verið að ræða. Matvælastofnun og Landssamband hestamanna líta málið grafalvarlegum augum enda hætta á að smitsjúkdómar geti borist hingað til lands með þessum hætti. Fréttir af málinu slógu samfélag hestamanna hér á landi í gær enda er smitfaraldur sem herjar á íslenska hestinn enn í gangi. Bíll mannsins sem heitir, Valdimar Bergstað, var að koma hingað til lands með gámaflutningaskipi. Í honum fundust notuð reiðtygi og óhreinn fatnaður. Bíllinn var einnig mjög skítugur og hafði greinilega verið notaður í umhverfi hesta erlendis. Í fréttum í gær sagði Haraldur Þórarinsson formaður Landssambands hestamanna að eftir því sem hann best vissi ætli Matvælastofnun að skoða málið, yrði það ekki gert myndi Landssambandið leggja fram kæru og fylgja málinu fast eftir. Málið er ekki síst alvarlegt í ljósi þess að innflutningurinn hefði getað falið í sér mikla hættu á að nýr smitsjúkdómur bærist í íslenska hrossastofninn eða aðrar dýrategundir. Ekki náðist í Valdimar Bergstað í morgun en í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gærkvöldi vegna málsins segir hann að honum þyki mjög leitt að hafa orðið á þessi mistök. Þetta hafi ekki verið gert af ásetningi og hann hafi ekki verið að reyna að smygla neinu til landsins heldur hafi þetta fyrst og fremst verið gert í hugsunarleysi. Um sé að ræða hans eigin reiðtygi sem hann tók með sér og notaði erlendis. Þá segir Valdimar að honum hafi vitanlega átt að vera ljóst að ekki mætti flytja notuð reiðtygi aftur til landsins og hann geti með engu móti réttlætt þessa yfirsjón. Hann biður síðan alla þá sem málið varðar, innilegrar afsökunar.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira