Innlent

Flestir tóku þátt

Sturla Böðvarsson
Sturla Böðvarsson

Sturla Böðvarsson, fyrrverandi samgönguráðherra og forseti Alþingis, hvetur til þess að horft verði fram á veg fremur en að staldra um of við liðna atburði.

Í niðurlagi bréfs til þingmannanefndar um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis segir Sturla: „Þjóðin þarfnast uppbyggilegra aðgerða. Þess ber að gæta að orka þings og þjóðar fari ekki öll í upprifjun mistaka og leit að sökudólgum.

Öll þjóðin var meira og minna þátttakandi í þeim leiðangri sem farinn var á fölskum forsendum þeirra sem fóru offari og mátu ranglega getu sína og þjóðarinnar til að takast á við það verkefni að byggja hér upp alþjóðlega fjármálamiðstöð. Því fór sem fór."- bþs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×