Óþægilegt að geta ekki rætt gögnin 20. september 2010 05:00 Birgir Ármannsson
Það er einkennileg og óþægileg staða að geta ekki rætt inntak trúnaðargagna þingmannanefndar Atla Gíslasonar með opinskáum hætti í þinginu vegna trúnaðar sem á þeim hvílir. Þetta segir Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Birgir kynnti sér gögnin um helgina og segir að efni þeirra hafi í engu breytt afstöðu hans til hugsanlegrar málshöfðunar á hendur fyrrverandi ráðherrum. „Það sem vekur athygli er hvað þessi gögn eru rýr miðað við það hve mikla áherslu Atli Gíslason lagði á þau í ræðu sinni á föstudaginn,“ segir Birgir. Í gögnunum sé þó mikið um lögfræðilegar vangaveltur álitsgjafa nefndarinnar sem Birgir hefði viljað ræða á Alþingi. Hluta þeirra hafi Atli vísað til í ræðu sinni en öðrum hafi hann sleppt. Birgir segir að æskilegt hefði verið að gögnin væru opinber svo ekki þyrfti að ræða efni þeirra í véfréttastíl eins og gera þarf með trúnaðargögn. Umræða um málið hefst í dag. Ræðutími hvers þingmanns er takmarkaður en óvíst er hversu lengi umræðurnar munu vara. Atli Gíslason vill að þeim loknum fá málið aftur til þingmannanefndar sinnar, en Birgir er sammála formanni allsherjarnefndar, Róberti Marshall, um að skynsamlegt væri að fá málið í allsherjarnefnd. Þannig gæfist öðrum þingmönnum tækifæri til að leggja mat á störf þingmannanefndarinnar.- sh
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira