Innlent

Segja hugmyndir vel kynntar

Fram undan er niðurskurður en bæjarfulltrúar minnihlutans gagnrýna hugmyndavinnuna.
fréttablaðið/gva
Fram undan er niðurskurður en bæjarfulltrúar minnihlutans gagnrýna hugmyndavinnuna. fréttablaðið/gva

Fulltrúar allra stjórnmálaflokka sem eiga sæti í bæjarstjórn Reykjanesbæjar, og eiga jafnframt fulltrúa í nefndum og ráðum sveitarfélagsins, ættu að þekkja til niðurskurðaráforma bæjarins, segir í tilkynningu frá bæjarstjórn Reykjanesbæjar.

Friðjón Einarsson, oddviti Samfylkingarinnar, sagði í viðtali við fréttastofu Stöðvar 2 í gær að hann hefði fyrst heyrt af 450 milljóna króna niðurskurðarhugmyndum, sem Árni Sigfússon bæjarstjóri hefur greint frá, í fjölmiðlum.

Í tilkynningunni segir að í bæjarráði hafi tvívegis verið gerð grein fyrir hugmyndum um sparnað og niðurskurð. Þar kemur meðal annars fram að stefnt sé að 450 milljóna króna niðurskurði á ársgrundvelli. „Allir stjórnmálaflokkar sem eiga sæti í bæjarstjórn Reykjanesbæjar eiga jafnframt fulltrúa í nefndum og ráðum sveitarfélagsins, þar á meðal í bæjarráði, þar sem niðurskurðaráform hafa verið kynnt. Fulltrúum þeirra hefur því frá fyrsta degi verið fullkunnugt um fyrirhugaðar niðurskurðarhugmyndir“, segir í tilkynningunni.

Friðjón segir að bæjarfélagið tapi um fjórum milljónum króna á dag en sjálfstæðismenn hafi í engu sinnt beiðni um samvinnu við að rétta bæjarfélagið við. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×