Sjálfstæðismenn mega vel við una í þéttbýliskjörnunum 30. maí 2010 11:25
Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi og bæjarfulltrúum í helstu þéttbýliskjörum landsins á meðan Samfylkingin tapar mönnum víða. Í Hafnarfirði eru Sjálfstæðismenn að bæta við sig tveimur mönnum á meðan Samfylkingin fer úr sjö bæjarfulltrúum í fimm. Því eru flokkarnir jafn stórir þó svo að Samfylkingin hafi hlotið betr kjörfylgi. Í Garðabæ, sem hefur ávallt verið sterkt vígi Sjálfstæðismanna, bæta þeir við sig manni. Þess má þó geta að Samfylkingin býður sig nú fyrst fram í bænum undir merkjum flokksins. Þeir ná einum manni. Áður bauð A-listinn sig fram og var með þrjá menn. Í Kópavogi tapa Sjálfstæðismenn eins og Samfylkingin. Báðir flokkarnir tapa manni en þar voru tvö ný framboð sem bæði náðu manni inn. Sjálfstæðisflokkurinn tapar tveimur mönnum í Reykjavík á meðan Samfylkingin tapar einum manni. Fylgið fer beint til Besta flokksins sem vann afgerandi sigur eða sex borgarfulltrúa. Í Mosfellsbæ bætir Sjálfstæðisflokkurinn við sig manni á meðan Samfylkingin tapar einum bæjarfulltrúa. Þeir eru því með einn bæjarfulltrúa í bænum en Sjálfstæðisflokkurinn er með fjóra. Sjálfstæðisflokkurinn vinnur svo frekar stóra sigur í Árborg en þar ná þeir fimm mönnum og bæta við sig einum. Samfylkingin heldur sínum tveimur. Akureyri er hinsvegar blóðugt vígi fyrir fjórflokkana líkt og í Reykjavík. Þar tapa Sjálfstæðismenn þremur mönnum en Samfylkingin tapar tveimur. Báðir flokkarnir eru því með einn mann en L-listinn náði hreinum meirihluta í kosningunum þar í bæ. Vinstri grænir hinsvegar halda vígi víðast hvar en bæta engum við sig af fyrrnefndum sveitarfélögum. Á Ísafirði halda Sjálfstæðismenn sínum fjórum mönnum. Samfylkingin býður sig ekki fram þar.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira