Innlent

Fimm útlendingar keyrðu of hratt í Hörgárdal

Lögreglan á Akureyri hafði afskipti af fimm ökumönnum á stuttu millibili í Hörgárdalnum í gærkvöldi sem óku langt yfir hámarkshraða.

Ökumennirnir mældust á bilinu 114 til 122 kílómetra hraða á klukkustund og áttu það allir sammerkt að vera útlendingar. Að sögn lögreglunnar á Akureyri hefur ekki borið mikið á hraðakstri á svæðinu í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×