Fagnar rannsókn á starfsemi lífeyrissjóðanna 20. ágúst 2010 21:03 „Þetta er nokkuð sem ég hvatt áður til að verði gert þannig að ég tel þetta vera jákvætt skref og fagna því," segir Ögmundur. Mynd/Arnþór Birkisson
Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, fagnar rannsókn á starfsemi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins. Hann segir lífeyrissjóðina sýna mikilvægt frumkvæði en það hafi stjórnvöld ekki gert. Rannsóknarnefnd skipuð af ríkissáttasemjara mun framkvæma úttekt á fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins. Gert er ráð fyrir því að nefndin ljúki störfum fyrir árslok. Stjórn og varastjórn Landssamtaka lífeyrissjóða ákvað á fundi sínum í lok júní að fara þessa leið og var ríkissáttasemjara falið að tilnefna þrjá einstaklinga í nefndina. Hrafn Bragason, lögfræðingur og fyrrverandi hæstaréttardómari, verður formaður rannsóknarnefndarinnar. „Þetta er mjög gott framtak og í samræmi við það sem ég hef áður lagt til sjálfur," segir Ögmundur. „Það er mikilvægt að fram komi hvernig stjórnendur lífeyrissjóðanna stóðu að fjárfestingum sínum og hvernig þeir gættu hagsmuna eigenda lífeyrissjóðanna sem er launafólkið í landinu."Stjórnvöld sýndu ekki frumkvæði Aðspurður segir Ögmundur að hugsanlega hefði verið heppilegra að stjórnvöld skipuðu rannsóknarnefnd til að fara yfir starfsemi lífeyrissjóðanna. Hann ætli þó ekki að lasta þetta framtak. „Það skrifast miklu frekar á stjórnvöld fremur en lífeyrissjóðina þar sem stjórnvöld sýndu ekki frumkvæði og lífeyrissjóðirnir bregðast sjálfir við með þessum hætti. Reyndar fyrir áeggjan margra lífeyrisþega í nokkuð langan tíma." Ögmundur segir að mestu máli skipta að nefndinni takist vel upp í störfum sínum.
Tengdar fréttir Starfsemi lífeyrissjóðanna rannsökuð Rannsóknarnefnd skipuð af ríkissáttasemjara mun framkvæma úttekt á fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins haustið 2008. Gert er ráð fyrir því að nefndin ljúki störfum með útgáfu skýrslu til stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða fyrir árslok 2010. 20. ágúst 2010 19:48 Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Sjá meira
Starfsemi lífeyrissjóðanna rannsökuð Rannsóknarnefnd skipuð af ríkissáttasemjara mun framkvæma úttekt á fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins haustið 2008. Gert er ráð fyrir því að nefndin ljúki störfum með útgáfu skýrslu til stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða fyrir árslok 2010. 20. ágúst 2010 19:48