Kyrrsetning eigna rýmkuð 20. ágúst 2010 18:48
Skattrannsóknarstjóri er að skoða hvort krafist verði kyrrsetningar eigna í um þrjú hundruð málum. Ríkisstjórnin hyggst rýmka heimildir embættisins til að krefjast kyrrsetningar eigna. 30. mars síðastliðinn voru samþykktar breytingar á lögum um tekjuskatt sem meðal annars fela í sér að skattrannsóknarstjóra er heimilt að krefjast kyrrsetningar hjá skattaðila, til tryggingar greiðslu væntanlegrar skattkröfu, ef hætta þykir á að eignum verði skotið undan eða þær glatist eða rýrni. Á borði skattrannsóknarstjóra var rannsókn á vangreiddum virðisaukaskatti í rekstri FL Group og var farið fram á að eignir fjögurra fyrrverandi forsvarsmanna félagsins yrðu kyrrsettar vegna málsins. Skarphéðinn Berg Steinarsson, fyrrverandi stjórnarformaður FL Group, var einn þeirra en hann fór með málið fyrir dómstóla og hafði sigur úr býtum þar sem heimildin náði ekki til virðisaukaskattsbrota. Eftir þetta féll skattrannsóknarstjóri frá kyrrsetningarbeiðni á eignum fjórmenninganna. Ríkisstjórnin hyggst nú rýmka þessar heimildir þannig að þær nái einnig til staðgreiðslu og virðisaukaskattsbrota. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir aðspurður að hljóti slíkt frumvarp samþykki Alþingis verði hægt að ganga að eignum þeirra sem reynt var að kyrrsetja í máli FL Group. „Þetta myndi þá taka til allra mála sem rannsókn er hafin á." Bryndís Kristjánsdóttir, skattrannsóknarstjóri, sagði í samtali við fréttastofu að 300 mál séu á borði embættisins og verið sé að skoða í hvaða málum krafist verði kyrrsetningar. Niðurstaða þeirrar könnunar mun liggja fyrir síðar í haust.
Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Innlent Birtu ekki baulið Erlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Fleiri fréttir Berglind nýr oddviti með minnsta mun „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð Sjá meira