Innlent

Rannsókn á banaslysinu á Grundartanga lokið

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Stjórnendur Elkem á Íslandi, sem rekur járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga, hafa í kjölfar banaslyss sem varð þegar sprenging varð í verksmiðjunni þann 29. júní síðastliðinn og rannsóknar á því tekið ákvörðun um margþættar aðgerðir til þess að auka enn frekar öryggi starfsemi sinnar.

Í tilkynningu frá Elkem segir að fyrr í þessari viku hafi hafist vinna við að endurræsa ofninn sem eldurinn slapp úr. Yfirumsjón og meginþungi rannsóknarinnar hefur hvílt á sérfræðingum frá móðurfélaginu Elkem AS í samstarfi við starfsmenn verksmiðjunnar á Íslandi. Vinnueftirlitið hefur frá upphafi fylgst með framgangi rannsóknarinnar og var ákvörðun um að gangsetja ofninn á nýjan leik tekin í samráði við stofnunina. Niðurstöður í sjálfstæðri rannsókn Vinnueftirlitsins á tilurð slyssins liggi einnig fyrir.

Nú þegar niðurstöður á rannsóknum á slysinu liggja fyrir hafa stjórnendur Elkem ákveðið að verksmiðjan muni einungis sinna framleiðslu járnblendis með að minnsta kosti 65% kísilinnihaldi, en slysið varð við framleiðslu á svokölluðu 55% kísiljárni. Hráefnisskammtar verða minnkaðir verulega í öllum ofnum verksmiðjunnar og hráefnismötun verður tölvustýrð. Með aukinni sjálfvirkni verður vinna á svokallaðri skörungshæð þar sem slysið átti sér stað minnkuð verulega og það tryggt að starfsmenn á hæðinni þurfi ekki að fara út úr vinnuvélum sínum. Þá hefur verið gripið til ýmissa fleiri ráðstafana, ýmsar vinnureglur hertar og þjálfun starfsfólks vegna nýs vinnulags aukin enn frekar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×